Boða skattheimtu á fjármálafyrirtæki án útfærslu Birgir Olgeirsson skrifar 1. apríl 2026 11:29 Daði Már kynnti fjármálaáætlun fyrir árin 2027-2031 síðdegis. Vísir/Ívar Fannar Ríkisstjórnin stefnir að því að afla viðbótarskatttekna frá fjármálafyrirtækjum á gildistíma fjármálaáætlunar, en fjármála- og efnahagsráðuneytið getur hvorki sagt til um hvernig það verður gert né hversu miklum fjármunum er ætlað að skila í ríkissjóð.
Þetta kemur fram í svörum ráðuneytis Daða Más Kristóferssonar við fyrirspurnum Vísis. Í fjármálaáætlun, sem kynnt var í síðustu viku, er aðeins kveðið á um að afla eigi „viðbótarskatttekna frá fyrirtækjum í fjármálageiranum“ án frekari skýringa. Fyrirtæki í geiranum greiða nú þegar sérstaka skatta á skuldir, laun og hagnað, en ekki liggur fyrir hvort eigi að hækka þá skatta eða leggja á nýja. Engar tölur eða útfærsla Í svörum ráðuneytisins segir að umræddar ráðstafanir séu enn á hugmyndastigi og bíði útfærslu í fjárlögum hvers árs. Af þeim sökum liggi hvorki fyrir sundurliðun á tekjum né mat á því hversu miklu eigi að safna. Þá hefur heldur ekki verið lagt mat á áhrif mögulegrar skattheimtu á vexti eða lánskjör almennings. Slíkt mat á að fara fram við gerð fjárlaga 2027 í haust. Segir 6 milljarða ekki eiga stoð í áætluninni Óvissan um umfangið hefur þegar orðið að pólitísku hitamáli. Framkvæmdastjóri þingflokks Samfylkingarinnar, Þórður Snær Júlíusson, hefur fullyrt að bankaskatturinn eigi að skila um 6 milljörðum króna árlega. Daði Már hefur hins vegar hafnað því í samtali við Morgunblaðið og sagt slíkar tölur ekki eiga sér stoð í fjármálaáætluninni. Samkvæmt umfjöllun Morgunblaðsins segir ráðherrann að engin fjárhæð sé tilgreind í opinberum gögnum og að allar útfærslur séu enn eftir. Því sé um misskilning að ræða að slíkar tekjur liggi þegar fyrir.
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármálafyrirtæki Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Fá að kaupa Pei og Motus Bora eftir jarðhita á Tenerife „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Gervigreindin að afhjúpa stjórnendur og klóna Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng „Ég er bara lögfræðingurinn sem dró stutta stráið“ Icelandair hafði betur gegn ósáttum aðdáanda Oasis „Myndi ráðleggja fólki að hlusta vel á maka sinn, fjölskyldu og sitt nánasta fólk“ Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Er blanda af Prins Valíant og Múmínálfinum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Sjá meira