Menning

Settu tærnar upp í loft og fengu knús

Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifar
Þau voru ófá knúsin sem Árni Már eigandi Gallery Port fékk í kveðjuhófinu um helgina.
Þau voru ófá knúsin sem Árni Már eigandi Gallery Port fékk í kveðjuhófinu um helgina. Aðsend

Myndlistarmennirnir Árni Már og Skarphéðinn standa á tímamótum eftir tíu ára rekstur af listrýminu Gallery Port. Þeir stóðu fyrir lokahófi um helgina eftir að hafa staðið að yfir 300 sýningum og viðburðum.

Margt var um manninn þegar strákarnir fögnuðu tíu ára starfsafmælinu með kveðjuteiti. 

„Eftir tíu  ár af samfelldu sýningarstússi og brasi hér og hvar um bæinn setur Gallery Port upp tærnar. 

Í kveðjuhófinu spilaði DJ Big G en einnig kom Teitur Magnússon fram ásamt Arnari Birgissyni og tóku þeir nokkur lög. 

Þá ræddi listfræðingurinn Margrét Áskelsdóttir við þá Árna Má og Skarphéðinn, stofendur Gallery Port, um söguna.

Í tilefni þessara tímamóta var gefið út prentverk í upplagi af 101, til minningar um það fjörlega listalíf sem allskonar myndlistarfólk hefur skapað með Gallery Port, á þeim þremur ólíku stöðum sem Port hefur sett sig niður,“ segir í fréttatilkynningu. 

Hér má sjá vel valdar myndir frá teitinu: 

Árni Már, Halli Civelek, Teitur Magnússon og Skarphéðinn að afgreiða prentverk.Aðsend
Jón Sæmundur, Ýmir Grönvold og Bragi Guðlaugsson á spjalli.Aðsend
Fjöldi fólks leit við.Aðsend
Verk eftir Baldur Helgason hér til vinstri.Aðsend
Halldór Sturluson, Heba Eir Kjeld og Skarphéðinn Bergþóruson.Aðsend
Helga Ósk Hlynsdóttir og Ingvar Orri Björgvinsson.Aðsend
Tobba Ólafsdóttir og Sæþór Örn Ásmundsson.Aðsend
Gauti Erlingsson og Árni í knúsi.Aðsend
Teitur tróð upp.Aðsend
Halli Civelek og Teitur Magnússon.Aðsend
Teitur Magnússon og Arnar Birgisson.Aðsend
DJ Big Gee.Aðsend
Gauti Erlingsson, Árni Már og Erla Gísladóttir.Aðsend
Árni og Gunnar Georgsson.Aðsend
Árni Már, Tobba Ólafsdóttir og Sæþór Örn Ásmundsson.Aðsend
Eyja Eydal og Silja Huld Árnadóttir.Aðsend
Árni Már, Halli Civelek, Teitur Magnússon og Skarphéðinn að afgreiða prentverk.Aðsend





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.