Víkingur - Vestri 4-0 | Víkingur er meistari meistaranna Ágúst Orri Arnarson skrifar 29. mars 2026 15:55 Oliver Ekroth og Daníel Hafsteinsson með Meistarabikarinn í höndunum. Íslandsmeistarar Víkings eru meistarar meistaranna eftir 3-0 sigur gegn bikarmeisturum Vestra í Meistarakeppni KSÍ. Nikolaj Hansen skoraði fyrstu tvö mörk Víkings. Valdimar Þór Ingimundarson og Óskar Borgþórsson bættu við mörkum í seinni hálfleik. Víkingar voru mun betri aðilinn á heimavelli hamingjunnar í dag og verðskulduðu sigurinn fyllilega. Ísinn var brotinn eftir rúman stundarfjórðung þegar Helgi Guðjónsson gaf fyrir á Nikolaj Hansen sem skoraði. Nikolaj komst svo aftur á blað skömmu fyrir hálfleik, með marki upp úr hornspyrnu. Valdimar Þór Ingimundarson skoraði svo þriðja mark Víkings undir lok leiks, eftir að hafa verið rændur vítaspyrnu skömmu áður. Óskar Borgþórsson bætti svo fjórða marki Víkings við í uppbótartímanum með gullfallegu skoti. Nánari umfjöllun, viðtöl og myndir eru væntanleg á Vísi von bráðar…. vísir / anton brink vísir / anton brink vísir / anton brink vísir / anton brink Besta deild karla Víkingur Reykjavík KSÍ Vestri Lengjudeild karla