Draugamarkið í Eyjum: Kastaði medalíunni út í hraun Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. mars 2026 08:02 Tómas Ingi Tómasson hefði getað tryggt sínu uppeldisfélagi, ÍBV, Íslandsmeistaratitilinn ef mark hans í úrslitaleiknum 2001 hefði verið dæmt gilt. Þá hefði hann jafnframt skorað þrennu fyrir fjórða félagið í efstu deild. sýn sport Tómas Ingi Tómasson á enn erfitt með að sætta sig við markið sem var dæmt af honum í úrslitaleik ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn í fótbolta karla fyrir aldarfjórðungi.
Fjallað er um markið sem var dæmt af Tómasi Inga í fyrsta þætti Augnablikanna, nýrra þátta úr smiðju Sýnar Sports um fræg og eftirminnileg augnablik úr íslenskri íþróttasögu. Þátturinn um markið sem dæmt var af Tómasi Inga nefnist „Draugamarkið í Eyjum“ og má sjá í heild sinni hér á Vísi. Klippa: Augnablikin - Draugamarkið í Eyjum Augnablikin eru fimmtán þátta sería en fyrstu tveir þættirnir verða sýndir á Sýn Sport Ísland klukkan 19:00 í kvöld. Þættirnir, „Draugamarkið í Eyjum“ og „Stjarna verður til“ verða einnig aðgengilegir á efnisveitu Sýnar Sports. Framvegis verða Augnablikin svo sýnd á Sýn Sport Ísland á sunnudagskvöldum, tveir þættir í einu. Úrslitaleikur í Eyjum Það kom flestum á óvart að ÍBV og ÍA skyldu berjast um Íslandsmeistaratitilinn fyrir 25 árum. Baráttan stóð allt fram í lokaumferð en liðin mættust í hreinum úrslitaleik um titilinn á Hásteinsvelli 23. september 2001. Skagamenn, sem dugði jafntefli til að verða meistarar, byrjuðu leikinn betur og komust í 0-2 eftir sautján mínútna leik. Þá tók Tómas Ingi til sinna ráða og jafnaði leikinn með tveimur mörkum. Eyjamenn héldu áfram að sækja enda þurftu þeir að vinna leikinn til að verða Íslandsmeistarar í fjórða sinn. Undir lok leiks fékk ÍA aukaspyrnu rétt fyrir utan eigin vítateig. Sturlaugur Haraldsson sparkaði boltanum aftur til markvarðarins Ólafs Þórs Gunnarssonar svo hann gæti tekið aukaspyrnuna. Boltinn er kjurr „Sturri leggur boltann niður og tekur hann held ég innan fótar með vinstri til baka. Þá met ég það að það sé búið að setja leikinn í gang,“ sagði Tómas Ingi þegar hann rifjaði atvikið upp. Hann lék á Ólaf og renndi boltanum í autt markið og hélt að hann hefði komið ÍBV í 3-2. En Egill Már Markússon, dómari leiksins, dæmdi markið af. „Í þann mund sem ég er að fara framhjá honum flautar dómarinn. Ég spurði hann að því hvað var að og þá sagði hann að boltinn hefði ekki verið kjurr. Boltinn er kjurr,“ sagði Tómas Ingi en Skagamennirnir Sturlaugur og Gunnlaugur Jónsson eru ekki á sama máli eins og kemur fram í þættinum. Fór um mig stundarkorn „Um leið og ég spyrni í boltann átta ég mig á því að þetta hafi ekki verið góð hugmynd. Það fór um mig stundarkorn en Egill Már dómari var alltaf með þetta á hreinu. Þetta lítur dálítið verr út í sjónvarpinu,“ sagði Sturlaugur. Tómas Ingi átti erfitt með að sætta sig við dóminn og að hafa misst af Íslandsmeistaratitlinum. „Ég var alveg brjálaður og mér finnst það ennþá. En ef einhverjir áttu að vinna þetta mót aðrir en við voru það þeir. Maður reyndi að vera nokkuð kurteis í verðlaunaafhendingunni en þegar ég labbaði upp í hús eftir leikinn tók ég medalíuna mína og henti henni út í hraun. Það sauð á mér mjög lengi,“ sagði Tómas Ingi í þættinum. Horfa má á „Draugamarkið í Eyjum“ í spilaranum hér fyrir ofan.
Besta deild karla ÍBV ÍA Augnablikin Mest lesið Freyr fagnaði eins og óður maður í leikslok Fótbolti Segir kominn tíma fyrir John Terry að fara að læra leikreglurnar Enski boltinn Flaug á hausinn á brautinni í gær en vann EM-gull í kvöld Sport Nýliðarnir eyða meira en Manchester United Enski boltinn Dregur stuðning við Infantino til baka og krefst rannsóknar Fótbolti Setti sjálfan sig á lista yfir hörmulegustu félagaskiptin Enski boltinn „Ísland breytti lífi mínu“ Íslenski boltinn Er Enzo Fernandez tveggja Rodri virði? Enski boltinn Albert fljótur að skora í bikarsigri Fiorentina Fótbolti „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Körfubolti Fleiri fréttir „Ísland breytti lífi mínu“ Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 0-3 | Slitu sig frá fallsvæðinu og juku eymd Víkings Tryllt stemning og töfrandi taktar á N1 mótinu á Akureyri Sjáðu geggjað mark Gylfa í sigri Víkings Stefnir langt í Evrópu og á Íslandsmeistaratitil Fær hjartaáfall við að horfa á varnarleik KR Markaveisla í toppslagnum og æsispennandi toppbarátta Þrótturum mistókst að komast á toppinn Uppgjörið: ÍBV-Stjarnan 3-2 | Eyjakonur upp í þriðja sætið Uppgjörið: Víkingur-FC Thun 3-2 | Evrópudeildardraumurinn úti Uppgjörið: Nordsjælland – Valur 5-0 | Ekki léttir í lund í Kaupmannahöfn Elvis kominn í Bítlabæinn Stelpurnar tóku yfir Akureyri Hnéhlífarnar nauðsynlegar er teymi Víkings hleypur fyrir Ingvar Fögnuðu sigri og tilkynntu Úlfu Dís eftir leik Öll lið lenda í þessu Uppgjörið: Breiðablik - Grindavík/Njarðvík 1-0 | Katelyn Duong hetja Blika Dagný Brynjars snýr aftur í fótboltann Uppgjörið: Þróttur-Valur 3-2 | Fyrsti sigur Þróttar í 75 daga Uppgjörið: Fram-FH 4-6 | Ótrúleg markasúpa á Lambhagavelli Fékk atvinnutilboð erlendis og hættir með kvennalið Keflavíkur Þórsarar fá annan Víking norður Þróttarar fá Björgeyju Njálu aftur heim Keflvíkingar bæta við sig Króata Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Ásdís Karen til FH Um ótrúlegt met KR: „Langskemmtilegustu leikirnir“ Martröðin í Kasakstan þjappaði Blikum saman Sjáðu öll 64 mörk KR í sumar Sveinn Aron spilar með Víkingi eins og afi sinn Sjá meira