Neytendur

Bankarnir byrjaðir að hækka vexti

Eiður Þór Árnason skrifar
Líkur eru á því að hinir bankarnir fylgi fast á eftir. 
Líkur eru á því að hinir bankarnir fylgi fast á eftir.  Vísir

Arion banki og Íslandsbanki hafa boðað vaxtahækkanir í kjölfar nýlegrar vaxtabreytingar Seðlabankans. Íbúðalánavextir hækka um allt 0,25 prósentustig og innlánsvextir um 0,35. Peningastefnunefnd Seðlabankans hækkaði meginvexti bankans um 0,25 prósentur á miðvikudag.

Sparisjóðurinn Indó hefur ákveðið að halda vöxtum óbreyttum en hann lánar ekki fyrir húsnæði. Landsbankinn hefur ekki enn tilkynnt vaxtabreytingar.

Hjá Arion banka munu óverðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir hækka um 0,25 prósentustig og verða 9,19%. Á sama tíma hækka óverðtryggðir íbúðalánavextir fastir til þriggja ára um 0,15 prósentustig og verða 8,25%.

Verðtryggðir breytilegir íbúðalánavextir lækka um 0,10 prósentustig hjá bankanum og verða 4,49%. Verðtryggðir íbúðalánavextir fastir til þriggja ára lækka einnig um 0,10 prósentustig og verða 4,64%.

Hjá Íslandsbanka hækka breytilegir vextir á óverðtryggðum húsnæðislánum um 0,25 prósentustig. Breytilegir vextir fyrstu kaupalána hækka sömuleiðis um 0,25 prósentustig. Ekki eru boðaðar breytingar á vöxtum verðtryggðra lána. 

Innlánsvextir hækka

Kjörvextir bílalána hjá Arion munu sömuleiðis hækka um 0,25 prósentustig og verða 10,75%. Þá fara yfirdráttarvextir og veltuvextir kreditkorta einnig upp um 0,25 prósentur verða 15,25%.

Stýrivaxtahækkun Seðlabankans mun sömuleiðis hafa áhrif á sparnað einstaklinga og fyrirtækja.

Vextir veltureikninga hjá Arion haldast óbreyttir en vextir annarra óverðtryggðra innlánsreikninga hækka um allt að 0,35 prósentustig. Vextir verðtryggðra reikninga munu hins vegar lækka um allt að 0,10 prósentustig.

Hjá Íslandsbanka munu vextir á óverðtryggðum sparnaðarreikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig. Vextir á veltureikningum fara upp um 0,15 prósentustig.

Vaxtabreytingarnar hjá Arion banka taka gildi 26. mars en 23. mars hjá Íslandsbanka.

Fréttin hefur verið uppfærð með vaxtaákvörðun Íslandsbanka.


Tengdar fréttir

Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað

Aðalhagfræðingur Arion banka segir helstu tíðindin af vaxtahækkunarákvörðun peningastefnunefndar í morgun, um 25 punkta hækkun, vera klofningur í nefndinni. Þrír nefndarmenn vildu hækka um 25 punkta en tveir vildu stíga skrefinu lengra og hækka um 50 punkta. Þá hafi seðlabankastjóri verið skýr með það að verði kjarasamningum slitið í sumar verði stýrivextir hækkaðir frekar.

Hækka stýrivexti

Peningastefnunefnd hefur ákveðið að hækka stýrivexti um 25 punkta og þeir fara því úr 7,25 prósentum í 7,5. Vextir höfðu fyrir það staðið í stað í 7,25 prósentunum síðan í nóvember síðastliðnum. Síðan þá hefur verðbólga aukist í 5,2 prósent og óvissa í alþjóðamálum einnig aukist. Því höfðu flestir greiningaraðilar spáð hækkun vaxta. Tveir af fimm nefndarmönnum vildu hækka vexti enn meira.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×