Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Lovísa Arnardóttir skrifar 20. mars 2026 14:03 Jón Jóhannsson er eigandi Skúbb á Laugarásvegi. Vísir/Vilhelm Jón Jóhannsson, eigandi ísgerðarinnar Skúbb, segir það nokkuð óvæntar fréttir að mjólk og rjómi séu ekki meðal helstu innihaldsefna í rjómaís frá Emmessís og mjúkís frá Kjörís. Hann segir yfirleitt ekki fleiri en fimm innihaldsefni í ísnum sem hann framleiðir og að það sé alltaf mjólk í grunninn.
Greint var frá því í nýjasta tölublaði Bændablaðsins að hert kókosfita og sykur væru aðalhráefnin í Mjúkís frá Kjörís og að vatn, smjör og hvítur sykur væru í Rjómaís frá Emmessís, en ekki mjólk eða rjómi. Mjólk væri á sama tíma helsta hráefnið í ís frá Skúbb, Rjómabúinu Erpsstöðum og Holtseli samkvæmt greiningu Bændablaðsins. Framkvæmdastjóri Emmessíss sagði í kjölfarið við Bændablaðið að alvanalegt væri að skipta rjóma út fyrir smjör en að það hefði ekki áhrif á lokaútkomuna, ísinn væri því sannarlega rjómaís. „Samkvæmt öllum reglugerðum og ísvenjum þá er rjómaísinn okkar svo sannarlega rjómaís,“ sagði Kristján Geir Gunnarsson, framkvæmdastjóri Emmessís. Jón Jóhannsson rekstrarstjóri Skúbbs segir ánægjulegt að það sé verið að vekja athygli á þessu. Rætt var við Jón í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. „Þetta er alveg rétt og það er rosa mikið af efnum verið að setja í ís og minna af mjólk og rjóma,“ segir Jón en að flestir haldi eflaust að mjólk og rjómi séu fyrst á innihaldslistanum. Lítið af innihaldsefnum „Okkar galdur og leyndarmál er það að við notum mjög lítið af innihaldsefnum í ísinn okkar. Fyrst og fremst er þetta mjólk og það er enginn mjólkurís hjá okkur sem er ekki með mjólk í fyrsta sæti á innihaldsefnalistanum. Það er bara númer eitt,“ segir hann og að öll mjólkin sé auk þess lífræn frá Bíó Bú. Jón segir aðalinnihald Skúbb-íssins alltaf vera mjólk og svo bragðefni. Stundum sé rjómi. Vísir/Vilhelm Ýmist komi þar á eftir rjómi eða annað hráefni sem gefur honum bragðið sem af honum er. Auk þess noti þau eingöngu lífrænan hrásykur og reyni alltaf að velja lífrænt ef kostur er á því. „Þannig að flest okkar hráefni eru lífræn að auki, en engar svona kókosfitur eða svoleiðis sem við notum.“ Skúbb er með eina verslun á Laugarásvegi og svo er ísinn seldur í verslunum Hagkaupa og Nettó og víðar. Jón segir þau einnig sinna ýmsum viðburðum í færanlegri ísbúð. Hann segir greiningu Bændablaðsins koma dálítið á óvart. Það hafi enginn haft samband við þau en hann fylgist lítið með samkeppnisaðilum sínum. „En jú, þetta kemur, kom þetta á óvart.“ Hann segir að í framleiðslu Skúbb-íss sé reynt að nota eins fá innihaldsefni og hægt er. „Eins og dæmi er í vanillu, það eru fjögur eða fimm innihaldsefni,“ segir Jón og að flestir ísarnir séu þannig. Hann vill meina að ísinn þeirra sé hollur. „Ég vil meina það, það eru mest íslensk hráefni og góð mjólk. Hann er mjög fitulítill og eru allir í kringum þrjú til fimm prósent fitu.“ Stundum rjómi en alltaf mjólk Hann segir undirstöðuna mjólkurís en það sé líka rjómi í nokkrum ísum sem framleiddir eru í Skúbb. Hann telur að ísinn sem hann framleiðir sé dýrari vegna þess að þegar hin efnin eru notuð verði meira til úr minna. „Með öllum þessum aukefnum verður til mikið loft. Það þarf náttúrulega að vera eitthvað loft í ís en maður sér það úti í búðum þegar maður lyftir mismunandi ísdollum að sumar geta verið alveg rosalega léttar. Við viljum hafa það kannski 15 til 20 prósent að hámarki en svo er það alveg upp í 30 til 50 prósent þarna úti.“ Lítrinn af ís í búðinni kostar 2.200 krónur en lítri af Kjörís mjúkís í Krónunni kostar til samanburðar allt frá 929 krónum til 1.236, eftir bragði. Lítri af Emmessís kostar um 823 krónur í sömu verslun.
Mest lesið Fjórar Kappahl-verslanir til viðbótar opnaðar á morgun Viðskipti innlent Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Neytendur Réttu tækifærin opnuðust þegar sumarstarfsmaður var ráðinn sem sendill Atvinnulíf Boðar fínstillingu á ETS-kerfinu á næstu dögum Viðskipti erlent „Við erum meira að segja hætt að hlusta í tölvupóstum“ Atvinnulíf Þórarinn dæmdur fyrir markaðsmisnotkun Viðskipti innlent „Af og frá“ að bankarnir græði á verðbólgu Viðskipti innlent Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Samstarf Tónabíó opnar á ný Viðskipti innlent Klofningur nefndarinnar helstu tíðindin og verkalýðnum hótað Viðskipti innlent Fleiri fréttir Bankarnir byrjaðir að hækka vexti Óvænt að ekki sé mjólk og rjómi í ísnum Hætta að taka við rúmfreku rusli á tveimur stöðvum Matvöruverð hækkar þvert á vöruflokka Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Innkalla Íslandsnaut hakk og hamborgara vegna gruns um salmonellu Breytingin auki hvorki traust né öryggi á leigubílamarkaði Android-notendur í hættu að vera ofrukkaðir í Strætó Kalla inn leikföng mögulega menguð af asbesti Sönnuðu ekki fullyrðingar um lækningamátt og fá háa sekt Pepsi víkur fyrir Coca-Cola í vélum Icelandair Boðar ódýrara súkkulaði í sumar vegna hruns á kakóverði Setti Ölgerðina í bann en hefur nú snúist hugur Ein og hálf milljón í sekt vegna villandi auglýsinga Bílstólarnir gagnlausir ef þeir eru vitlaust festir Á að fá endurgreidd gler eftir gallaða sjónmælingu Engin svör að fá sem skýra „rán um hábjartan dag“ Fjölga verslunum í Danaveldinu Innkalla ungbarnakex vegna aðskotahluta Aðskotahlutur í lifrarpylsu: „Mál sem við tökum mjög alvarlega“ Allt að 120 prósenta hækkun verðskrár Sjá meira