Svæði rýmt á Ísafirði og beðið eftir illviðri Lillý Valgerður Pétursdóttir og Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifa 19. mars 2026 19:50 Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar segir Ísfirðinga undir allt búna. Vísir Hættustig er vegna snjóflóðahættu á Ísafirði og víðar á landinu er snjóflóðahætta. Þá er illviðri spáð víða um land í kvöld og á morgun. Rask verður á flugi næsta sólarhring og björgunarsveitir eru sem fyrr í viðbragðsstöðu.
Á norðanverðum Vestfjörðum er töluverður snjór eftir norðanáttir síðustu vikuna og þegar hlýnaði í morgun féll meðal annars stórt snjóflóð í Kirkjubólshlíð sem fór út í sjó. Hættustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á Ísafirði. „Það er búið að rýma hérna svæði sem er bara atvinnuhúsnæði hérna fyrir ofan Skutulsfjarðarbraut. Sú rýming er enn í gildi,“ segir Sigríður Júlía Brynleifsdóttir bæjarstjóri Ísafjarðarbæjar. Hún segir bæjarbúa búa sig undir slæmt veður í kvöld og nótt. Óvissustig er í gildi vegna snjóflóðahættu á Norðurlandi og norðanverðum Vestfjörðum. Þá er einnig óvissustig í gildi vegna krapaflóðahættu á sunnanverðum Vestfjörðum. Sandi og grjóti rigndi yfir bíla Sigríður Júlía segir reynt að halda úti snjómokstri á svæðinu og passa upp á niðurföll. Þó að íbúar séu öllu vanir séu margir uggandi. „Við berum virðingu fyrir náttúrunni og við vitum alveg hvað getur gerst en þá skiptir svo miklu máli að við erum með áætlanir og annað og lögreglan er að sinna því að sjá til þess að það sé fínt og við erum með Snjóflóðasetrið hérna sem er alltaf á vaktinni.“ Millilandaflug frá Bandaríkjunum hefur sömuleiðis verið fellt niður í fyrramálið. Búist er við að rask á flugi muni hafa áhrif á minnst tvö þúsund manns. Gular veðurviðvaranir taka gildi víðast hvar um landið í kvöld og munu standa yfir fram til aðfaranætur laugardags. Jón Þór Víglundsson upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir daginn hafa gengið rólega hingað til hjá björgunarsveitum. „Hann byrjaði með smá hvelli fyrir austan þegar um tuttugu bílar lentu í því að sandi og grjóti rigndi yfir þá í Hvalnesi og Þvottárskriðum milli Hafnar í Hornafirði og Djúpavogs,“ sagði Jón Þór í kvöldfréttum. Hann ráðleggur þeim sem eru á faraldsfæti um landið að bíða með ferðalög þar til stærsti skellurinn er yfirstaðinn.
Ísafjarðarbær Veður Mest lesið Landlæknir fellir niður starfsleyfi sex lækna Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Hefði þegið samtal við Jóhannes Innlent Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Niður í ellefu ára bruni um á allt að 100 kílómetra hraða Innlent Pútín sló öll met Erlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Lárus Welding á endastöð hjá MDE Innlent Muni grípa til nauðsynlegra aðgerða vegna verkfallsins Innlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Fleiri fréttir Gular viðvaranir á Suður- og Vesturlandi Gul viðvörun vegna hvassviðris gefin út Hvessir allverulega á morgun Bjart framan af en skúrir síðdegis Skýjað og dálítil væta víðast hvar Rigning og víða hvasst um nær allt land Vara við hvössum vindum í nótt Von á vaxandi suðaustanátt og rigningu Haustið mætir á miðvikudaginn Rigning á Norðurlandi en að mestu þurrt annars staðar Næturfrost norðaustantil Umhleypingar næstu daga Vætusamt veður í kortunum Áfram rigning og lægðagangur Bætir í úrkomu síðdegis Allt að átján stiga hiti í dag Hviður allt að 30 metrar á sekúndu á Suðausturlandi Gul veðurviðvörun og sextán stiga hiti Gul viðvörun vegna hvassviðris á Suðausturlandi Vara við snörpum hviðum Bjart með köflum sunnan heiða Veður betra í Grindavík eftir jarðhræringarnar Yfirleitt bjart en einhverjar skúrir sunnantil Gætu orðið hressilegar dembur inn til landsins Skýjað að mestu og hæg norðlæg eða breytileg átt Rigning og skúrir víða um land Bætir í úrkomu eftir hádegi Spáð hlýju veðri norðaustantil Víða skúrir en allt að tuttugu stigum austanlands Stinningskaldi og súld suðvestanlands Sjá meira