Fótbolti

Bein út­sending: Arnar velur vestur­fara

Sindri Sverrisson skrifar
Arnar Gunnlaugsson hefur valið þá leikmenn sem mæta Kanada og Haítí í lok þessa mánaðar.
Arnar Gunnlaugsson hefur valið þá leikmenn sem mæta Kanada og Haítí í lok þessa mánaðar.

Arnar Gunnlaugsson, þjálfari karlalandsliðs Íslands í fótbolta, kynnir í dag leikmannahópinn sem heldur til Kanada og spilar tvo leiki við HM-þjóðir í þessum mánuði.

Blaðamannafundurinn ætti að hefjast klukkan 13:15 og beina útsendingu má sjá í spilaranum hér að neðan.

Arnar getur nú valið sinn sterkasta hóp eftir að hafa verið með hóp í 4-0 tapinu gegn Mexíkó í febrúar sem að langmestu var skipaður leikmönnum sem spila hérlendis.

Ísland mætir Kanada 28. mars í Toronto og svo Haítí þremur dögum síðar. Um er að ræða vináttulandsleiki.

Í dag var svo tilkynnt að Ísland færi til Asíu í vor og myndi spila við Japan í Tókýó 31. maí. Verið er að leita að öðrum mótherja til að spila við í kjölfarið.

Næstu mótsleikir Íslands eru svo í Þjóðadeildinni í haust.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×