Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 15. mars 2026 23:31 Eins og oft áður á tímabilinu fékk Liverpool á sig mark undir lokin þegar Tottenham kom í heimsókn í dag. getty/Carl Recine Jamie Carragher fór ófögrum orðum um frammistöðu Liverpool í jafnteflinu gegn Tottenham í dag. Hann segist ekki vita hver ástæðan fyrir óförum Liverpool á tímabilinu sé.
Richarlison tryggði Spurs sitt fyrsta stig undir stjórn Igors Tudor þegar hann jafnaði í 1-1 á lokamínútunni á Anfield í dag. Liverpool varð því af tveimur stigum í baráttunni um Meistaradeildarsæti. „Þetta er algjör hörmung fyrir Liverpool í Meistaradeildarbaráttunni. Þeir létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið,“ sagði Carragher á Sky Sports eftir leikinn í dag. „Varnarleikurinn hjá Liverpool var glórulaus. Allan seinni hálfleikinn sagði ég að þeir hefðu verið eins og þeir væru sofandi. Þetta var hræðileg frammistaða. Með fullri virðingu fyrir Tottenham eru þeir sennilega versta lið deildarinnar núna. Þeir eru það lið sem þú vilt spila við, á heimavelli og þú spilar svona. En þetta hefur verið svona allt tímabilið.“ Of auðvelt að spila gegn Liverpool Carragher segist ekki vita nákvæmlega hvert vandamál Liverpool er; knattspyrnustjórinn Arne Slot eða leikmannahópurinn. „Stóra spurningin sem er á allra vörum er hvort þetta sé vegna stjórans eða samsetningar hópsins? Gæti nýr stjóri kveikt aftur á þessum leikmönnum og komið aftur með orku og ákefð inn í liðið? Ég veit ekki,“ sagði Carragher. „Ég held að margt sé hægt að rekja til sumarsins, leikmannanna sem komu inn og það eru of margir leikmenn sem vilja bara spila þegar þeir eru með boltann á tánum. Það er of auðvelt að spila við þetta Liverpool-lið.“ Liverpool tekur á móti Galatasaray í seinni leik liðanna í sextán liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu á miðvikudaginn kemur. Næsti deildarleikur Liverpool er gegn Brighton á útivelli í hádeginu næsta laugardag.
Enski boltinn Liverpool FC Tottenham Hotspur Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira