Sport

Sjáðu Hilmar setja nýtt Ís­lands­met og tryggja EM sæti

Aron Guðmundsson skrifar
Frábær árangur hjá Hilmari Erni.
Frábær árangur hjá Hilmari Erni. Vísir/Getty

Sleggjukastarinn Hilmar Örn Jónsson gerði sér lítið fyrir og setti nýtt Íslandsmet í greininni á Evrópubikarkastmótinu á Kýpur núna í morgun. Kastið nægði Hilmari einnig til þess að tryggja sér sæti á Evrópumótinu í frjálsum íþróttum sem fer fram í Birmingham í sumar.  

Hilmar kastaði 78,03 metra á Kýpur í morgun og náði þar með lágmarki inn á EM sem var 77 metrar. 

Þetta er lengsta kast Íslendings í sleggjukasti til þessa, nýtt Íslandsmet og bæting á því fyrra sem var einnig í eigu Hilmars og var upp á 77,10 metra og hafði staðið frá árinu 2020. 

Í myndbandi sem birtist á samfélagsmiðlareikningi Evrópska frjálsíþróttasambandsins má sjá Hilmar kasta fyrir Íslandsmetinu í morgun og af viðbrögðum hans að dæma vissi hann um leið í hvað stefndi þegar að sleggjan hóf flug sitt. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×