Tudor segir að fallslagurinn sé mikilvægari en Meistaradeildin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 10. mars 2026 12:30 Igor Tudor segir það í forgangi að bjarga Tottenham frá falli úr ensku úrvalsdeildinni, frekar en að komast langt í Meistaradeild Evrópu. getty/Alberto Gardin Igor Tudor, knattspyrnustjóri Tottenham, segir að aðalmarkmið liðsins á þessari stundu sé að bjarga sér frá falli úr ensku úrvalsdeildinni. Árangur í Meistaradeild Evrópu mæti afgangi.
Spurs er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni og hefur ekki enn unnið deildarleik á þessu ári. Öllu betur hefur gengið í Meistaradeildinni á þessu tímabili. Spurs endaði í 4. sæti deildarkeppninnar og komst þar af leiðandi beint í sextán liða úrslit. Þar mætir Tottenham Atlético Madrid en fyrri leikur liðanna fer fram í spænsku höfuðborginni í kvöld. Tudor segir að forgangsatriði sitt sé að bjarga Tottenham frá falli. Árangur í Meistaradeildinni sé bara bónus. „Allir leikir eru mikilvægir. Það er hægt að vera með allt annað hugarfar í svona leik svo kannski getur hann hjálpað okkur að sjá hver vandamálin eru og laga þau. En við einbeitum okkur alltaf að okkur, að vaxa sem lið og gera hlutina betur,“ sagði Króatinn. „Fyrsta markmið okkar er enska úrvalsdeildin. Þetta er eitthvað sem verður að segja opinberlega. Það er eðlilegt. Meistaradeildin er eitthvað auka en það þýðir ekki að við viljum ekki fara áfram.“ Tottenham tapaði fyrstu þremur leikjunum undir stjórn Tudors og fékk á sig samtals níu mörk í þeim. Tudor tók við Spurs af Thomas Frank sem var látinn taka pokann sinn í síðasta mánuði. Á blaðamannafundi í gær staðfesti Tudor að Richarlison myndi byrja inn á gegn Atlético. Brassinn er markahæsti leikmaður Tottenham á tímabilinu með níu mörk í öllum keppnum. Tudor getur svo teflt fyrirliðanum Cristian Romero fram í fyrsta sinn síðan hann tók við. Romero hefur verið í banni í síðustu fjórum deildarleikjum Tottenham. Leikur Atlético Madrid og Tottenham hefst klukkan 20:00 í kvöld og verður sýndur beint á Sýn Sport 2.
Enski boltinn Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Tottenham Hotspur Mest lesið „Stoltur af henni og hún á þetta mjög mikið skilið“ Sport Úrvalsdeildarfélög undirbúa málsókn gegn City Sport Haaland mætir ekki í viðtal eftir tíðindi dagsins Sport „Höfum talað digurbarkalega um það“ Fótbolti „Getum ekki mætt í neinn leik og leyft okkur að slaka á“ Sport Internetið gerir grín að Caleb Williams Sport Celtic og Rangers áfrýja Sport Nafnarnir í KA sáu um Val Sport „Sagði bara við hann, ég skal taka þetta“ Sport Tuchel segir Palmer of oft fjarverandi Sport Fleiri fréttir Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Sjá meira