Fótbolti

Draumabyrjun en matraðarendir hjá Victori í Íslendingaslag

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Guðlaugur Victor Pálsson skoraði mark síns liðs í dönsku deildinni i kvöld.
Guðlaugur Victor Pálsson skoraði mark síns liðs í dönsku deildinni i kvöld. Getty/Sebastian Frej

Íslenski landsliðsmiðvörðurinn Guðlaugur Victor Pálsson var á skotskónum í Íslendingaslag en hann og félagar hans fóru þó stigalausir heim.

Guðlaugur Victor kom Horsens yfir í upphafi leiks en Lyngby fagnaði 3-1 sigri.

Guðlaugur Victor skoraði fyrsta mark leiksins á 3. mínútu eftir að hafa farið fram í hornspyrnu.

Ísak Snær Þorvaldsson og félagar í Lyngby svöruðu með þremur mörkum.

Ísak kom þó ekki að neinu þeirra með því að skora eða gefa stoðsendingu. Mörkin skoruðu liðsfélagar hans Neil Pierre (tvö) og Asbjörn Böndergaard. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×