Sport

FH vann tvö­falt aðra helgina í röð

Ágúst Orri Arnarson skrifar
FH er með öflugasta frjálsíþróttalið landsins um þessar mundir. Myndin er frá Nike móti FH í janúar. 
FH er með öflugasta frjálsíþróttalið landsins um þessar mundir. Myndin er frá Nike móti FH í janúar.  FH FRJÁLSAR

Lið FH stóðu uppi sem sigurvegarar í bæði karla- og kvennaflokki í bikarkeppni Frjálsíþróttasambandsins sem fór fram í Kaplakrika í dag.

FH-ingar mættu með sjálfstraustið skrúfað í botn eftir tvöfaldan sigur á Meistaramóti Íslands í Laugardalshöll um síðustu helgi. Bæði karla- og kvennaliðin unnu bikarinn síðan með miklum yfirburðum í dag.

Karlalið FH náði 64 stigum en ÍR varð í öðru sæti með 51 stig. Kvennalið FH náði 73 stigum en ÍR varð í öðru sæti með 61 stig. Eðli málsins samkvæmt stóð FH líka uppi sem sigurvegari í samanlögðu keppninni, með 147 stig gegn 121 stigi ÍR.

Kolbeinn Höður Gunnarsson (60 metra hlaup), Leó Örn Þórarinsson (400 metra hlaup) og Fjölnir Brynjarsson (1500 metra hlaup) voru stigahæstir hjá FH í karlaflokki.

Ísold Sævarsdóttir (400 metra hlaup), Helga Þóra Sigurjónsdóttir (hástökk) og Birna Kristín Kristjánsdóttir (langstökk) voru stigahæstar hjá FH í kvennaflokki.

Keppnin fór annars fram með nokkuð rólegu móti, það er að segja engin met féllu, en stemningin var að sjálfsögðu til staðar á einum stærsta hápunkti innanhústímabilsins, að sögn skipuleggjenda mótsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×