Vill breytingar og býður dómurum á æfingasvæðið Ágúst Orri Arnarson skrifar 6. mars 2026 18:02 Nuno segir dómurum velkomið að halda kynningu fyrir leikmenn Nottingham Forest. Vince Mignott/MB Media/Getty Images Nuno Espírito Santo, aðalþjálfari Nottingham Forest í ensku úrvalsdeildinni, segir föst leikatriði í fótbolta hreinlega orðin sturluð og býður dómarastéttinni að halda kynningu fyrir leikmenn til að útskýra hvað er löglegt.
Metfjöldi marka hefur verið skoraður í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili eftir föst leikatriði. Það eru hornspyrnur, aukaspyrnur og innköst. Topplið Arsenal hefur farið þar fremst í flokki en fleiri lið hafa nýtt sér þetta vopn. Sparkspekingar sem og almennir áhorfendur hafa þó lýst yfir áhyggjum af þróun föstu leikatriðanna í fótboltanum. Sóknarliðið þykir komast upp með of mikið í vítateignum. Sumir hafa meira að segja gengið svo langt að hætta alfarið að horfa á fótbolta, eins og hollenska goðsögnin Ruud Gullit. „Ég sé leikmenn reyna að fiska hornspyrnur, leikmenn reyna að fiska innköst og ég sé boltastráka tilbúna að rétta leikmönnum handklæði. Fótboltinn er orðinn alveg hræðilegur,“ sagði Gullit. Nuno er sjálfur fyrrum markmaður og finnur örugglega til með kollegum sínum sem standa á milli stanganna en komast hvorki lönd né strönd í vítateignum þegar föst leikatriði eru framkvæmd. „Það sem dómarar leyfa nú til dags í föstum leikatriðum er eiginlega bara sturlað. Mér finnst þeir þurfa að skoða þetta. Þeir ættu líka að koma til klúbbanna og útskýra fyrir þeim, hvað er brot, hversu langt máttu ganga, svo leikmenn skilji betur hvað má og hvað má ekki. Því núna erum við að sjá hluti sem mér finnst ekki eðlilegir, í mörgum ætti að dæma brot að mínu mati.“ ''What is happening with the set-piece situation is almost crazy... I think they should review it'' Nuno Espírito Santo on the behaviour of players around set-pieces ⚒️ pic.twitter.com/ak4uoV43n8— Sky Sports News (@SkySportsNews) March 6, 2026 Nuno sagðist líka hafa rætt þessi mál við Howard Webb, yfirmann dómarasamtakanna á Englandi, og komið sjónarmiðum sínum áleiðis.
Enski boltinn Nottingham Forest Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Enski boltinn Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Fleiri fréttir Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Sjá meira