„Ísland er með óþægilegt lið“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. mars 2026 10:32 Mariona Caldentey eftir leik með Arsenal í Meistaradeildinni þar sem hún var valin besti leikmaðurinn á vellinum. Getty/Molly Darlington Stórstjarna spænska liðsins spilar sinn hundraðasta landsleik á móti Íslandi í kvöld.
Mariona Caldentey mætti á blaðamannafundinn fyrir leik Íslands og Spánar í undankeppni HM í fótbolta í kvöld. Þetta verður mjög stór leikur fyrir eina af stærstu stjörnum spænska landsliðsins og leikmann Arsenal því Caldentey mun spila sinn hundraðasta landsleik í kvöld. Ég er með mjög slæmt minni „Þetta var ekki markmið. Markmiðið var að vera með eins lengi og hægt væri og spila eins mikið og mögulegt væri. Maður hugsar ekki út í þetta. Ég er mjög glöð og það eru forréttindi að fá að vera hér. Ég er með mjög slæmt minni og fótboltinn gengur mjög hratt fyrir sig en ég man eftir fyrsta leiknum mínum í Japan á Algarve-mótinu. Einnig Þjóðadeildinni á Wanda, Ólympíuleikunum,“ sagði Mariona Caldentey. Hún var að sjálfsögðu spurð út í íslenska landsliðið. Styrkur þeirra í liðsheildinni „Við vitum að styrkur þeirra liggur í liðsheildinni. Ísland er með óþægilegt lið, þær sækja vel og eru mjög hættulegar í föstum leikatriðum,“ sagði Caldentey. 🎙️ "Nuestro objetivo es claro: clasificarnos para estar en Brasil cuanto antes". 🗣️ @mariona8co.📺 https://t.co/dtyigSY6d2#FIFAWWC | #JugarLucharYGanar pic.twitter.com/0JUpx5MUxV— Selección Española Femenina de Fútbol (@SEFutbolFem) March 2, 2026 „Markmið okkar er skýrt, að komast til Brasilíu og því fyrr því betra. Öll stig gilda jafn mikið, við megum ekki bara hugsa um England. Þetta landslið vill spila vel og fara út á völlinn til að verja titilinn og sýna sigurviljann. Ungu leikmennirnir hvetja okkur öll áfram. Liðið mun leggja allt í sölurnar, það er engin slökun og við vanmetum engan mótherja,“ sagði Caldentey. Hún segist stolt af því að vera í þessu liði og hún metur það sem það hefur kostað að komast hingað. Þessi kynslóð hefur slegið í borðið „Þessi kynslóð hefur lamið í borðið. Um daginn ræddum við að það væru kynslóðir á undan okkur sem börðust fyrir því að við gætum verið hér í dag. Þær nýju hafa þetta nú þegar og við höfum upplifað báðar hliðar fótboltans og við megum ekki gleyma öllu því sem við höfum gengið í gegnum og því sem margir leikmenn á undan okkur þurftu að þola,“ sagði Caldentey. „Við höfum allt og erum mjög heppnar. Hæfileikarnir hafa alltaf verið til staðar og nú er vel unnið með þá. Ég er stolt af hópnum sem við höfum. Ef eitthvað hefur sýnt sig, þá er það að Spánn er ofar öllum nöfnum og það eru bestu fréttirnar fyrir Spán,“ sagði Caldentey. Um hópinn með öllum ungu nýliðunum sagði Mariona: „Ef það hafa verið einhverjar nýliðavígslur, þá er það mikilvægasta að þeim nýju líði vel og þær séu velkomnar. Þær eru að skemmta sér vel og sýna mjög gott stig á vellinum,“ sagði Caldentey. 🔴 𝗘𝗡 𝗗𝗜𝗥𝗘𝗖𝗧𝗢 | Entrenamiento oficial: España - Islandia📺 Síguelo también en https://t.co/MEf2v7qLNo.#FIFAWWC | #JugarLucharYGanar https://t.co/8Nyhqbfzz0— Selección Española Femenina de Fútbol (@SEFutbolFem) March 2, 2026
HM 2027 í Brasilíu Landslið kvenna í fótbolta Mest lesið Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Landsliðskona í Val Handbolti Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Fótbolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Fleiri fréttir Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Myndi taka kúlu fyrir Infantino Baleba færist nær United Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Mourinho: Rodri fékk mig til að efast Musiala hneig niður í annað skipti á fjórum dögum vegna galla í taugakerfi Ætlar að gera Arsenal að besta liði í heimi Arsenal-goðsögn að taka við Senegal Norsku Víkingarnir gerðu jafntefli í Zagreb Kara með þrennu fyrir KR og Tindastóll fallið Rodri genginn í raðir Barcelona „Sambandið er einfaldlega að ýta á sjálfseyðingarhnappinn“ Semur aftur við Corinthians nokkrum dögum eftir að hafa úthúðað félaginu Gagnrýnir FIFA fyrir brottrekstur Lamours: „Stjórnun sem byggir á ótta“ Sjá meira