Viðskipti innlent

Jón Örn genginn í eigendahópinn

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
f2d9d89b-ddf5-4940-bcbe-3fef855a08fd.jfif

Jón Örn Árnason er genginn í eigindahóp Markarinnar lögmannsstofu. Hann hefur starfað hjá stofunni síðan 2018.

Í fréttatilkynningu segir að Jón Örn sé lögmaður með leyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi, hann lauk BA-prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 2011 og meistaraprófi árið 2014. Hann lauk hluta af meistarprófinu við Háskólann í Uppsölum. 

Jón starfaði áður hjá ríkisskattstjóra og síðar sem lögfræðingur hjá yfirskattanefnd. Ásamt skatta- og stjórnsýslurétti eru helstu starfssvið Jóns Arnars félagaréttur og eignaréttur.

Mörkin lögmannsstofa hefur verið starfrækt frá árinu 1975. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×