Rooney vill halda Guardiola hjá City Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 20. febrúar 2026 10:30 Wayne Rooney vonast til að Pep Guardiola haldi kyrru fyrir hjá Manchester City. getty/Stu Forster Wayne Rooney, fyrrverandi fyrirliði Manchester United, vonast til að Pep Guardiola verði áfram við stjórnvölinn hjá Manchester City. Hann segir hann setja fordæmi fyrir aðra stjóra.
Guardiola hefur stýrt City síðan 2016 og unnið allt sem hægt er að vinna með liðinu, meðal annars þrennuna tímabilið 2022-23. Ekki liggur fyrir hvort Guardiola haldi áfram með City eftir þetta tímabil en Rooney vonast til að Spánverjinn verði áfram í enska boltanum. „Sumir leikmenn vilja að hann fari, aðrir ekki. Það veltur á því hvort þú ert í liðinu eða ekki og þannig er það hjá öllum stjórum,“ sagði Rooney í hlaðvarpi sínu. „Ég vona að hann verði áfram því hann er frábær fyrir ensku úrvalsdeildina og þú vilt hafa bestu stjórana þar. Hann setur viðmiðið fyrir alla aðra undanfarinn áratug,“ bætti Rooney við. Ef Guardiola ákveður að láta staðar numið hjá City eftir tímabilið vill Rooney að félagið leiti til Vincents Kompany, stjóra Bayern München. Kompany lék lengi með City og var fyrirliði liðsins. City tekur á móti Newcastle United annað kvöld. Með sigri minnkar liðið forskot Arsenal á toppi deildarinnar niður í tvö stig. Arsenal mætir Tottenham í grannaslag á sunnudag. Leikur Manchester City og Newcastle hefst klukkan 20:00 á morgun og verður sýndur beint á Sýn Sport.
Enski boltinn Manchester City Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Porro missir af sex leikjum Enski boltinn Fleiri fréttir Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Sjá meira