Prófessor slær á áhyggjuraddir Lovísa Arnardóttir skrifar 19. febrúar 2026 07:32 Gylfi telur að breyta þurfi orðalagi í frumvarpinu þannig það sé skýrara. Vísir/Vilhelm Gylfi Magnússon, hagfræðingur, prófessor við Háskóla Íslands og fyrrverandi efnahags- og viðskiptaráðherra, segir ekki nokkra leið að fá það út, miðað við forsendur frumvarps ráðherra um tengingu bóta við launavísitölu, að breytingin eigi eftir að stefna fjárhag ríkisins í hættu. Annað mál sé þó hversu óskýrt orðalagið sé varðandi það hvað eigi að gera þegar laun hækka en það sé auðvelt að breyta því.
Greint var frá því í kvöldfréttum Sýnar að ekki væri útlit fyrir að frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu verði afgreitt úr þingnefnd fyrr en í fyrsta lagi í byrjun mars. Hart hefur verið tekist á um málið þrátt fyrir að það snúi í meginatriðum um að breyta einu orði. Stjórnarandstaðan segir fjölga í hópi gagnrýnenda en hagfræðingarnir Axel Hall, Gylfi Zoega og Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri hafa varað við frumvarpinu. Tíu hafa skilað umsögn um málið og kom fram í kvöldfréttum Sýnar í gær að velferðarnefnd Alþingis taki á móti gestum vegna málsins á næsta fundi sínum. Deilt hefur verið um það hvort frumvarpið feli í sér svokallaðan tvöfaldan lás. Þar er vísað til þess að bætur almannatrygginga muni bæði taka mið af launaþróun og aldrei hækka minna en verðlag. Hafa gagnrýnendur varað við því að þetta geri það að verkum að kjör bótaþega hækki í öllum tilfellum, einnig þegar kaupmáttur launþega rýrni í mikilli verðbólgu. Forsætisráðherra og aðrir stjórnarliðar hafa á sama tíma hafnað því að breytingin feli í sér þennan tvöfalda lás. „Það er ekki nokkur leið að fá það út að þetta stefni fjárhag ríkisins í hættu, upphæðirnar sem um ræðir eru það lágar í samhengi við rekstur ríkisins. Í greinargerð með frumvarpinu er kostnaðurinn metinn á 4-5 milljarða króna á ári, sem virkar sæmilega trúverðugt. Miðum hér við 4,5 milljarða,“ segir Gylfi í færslu á Facebook. Helmingur skili sér til baka Hann segir rétt tæplega helming líklega skila sér aftur til ríkis og sveitarfélaga í gegnum tekjuskatt. Miðað við fjóra til fimm milljarða myndu um 950 milljónir fara í tekjuskatt, 675 milljónir í útsvar og 557 milljónir í virðisaukaskatt sé gert ráð fyrir því að tekjunum sé varið í neyslu í almenna virðisaukaskattsþrepinu. Auk þess gætu einhverjar tekjur skilað sé í gegnum vörugjöld og tekjuskatt seljenda vöru og þjónustu. Gylfi segir að samanlagt séu það um 2,3 milljarðar sem útgjöld hins opinbera aukast um að frádregnum nýjum tekjum. „Það er rétt innan við einn fimmti af einu prósenti af skatttekjum ríkisins. Það setur augljóslega ekki fjárhag ríkisins í uppnám,“ segir Gylfi. Eðlilegt að deila Hann segir þó alveg eðlilegt að deila um svona breytingar, til þess séu stjórnmálin, en að það eigi varla að gera á þeim forsendum að breytingin stefni ríkisfjármálunum í einhverja stórhættu. „Það er annað mál að orðalagið sem lagt er til vegna þessarar breytingar er ekki alveg nógu skýrt um það hvað eigi að gera þegar laun hækka ýmist meira eða minna en verðlag, en það er auðvelt að laga,“ segir hann að lokum.
Tryggingar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Heilbrigðiseftirlit Rekstur hins opinbera Tenging almannatrygginga við launavísitölu Seðlabankinn Alþingi Flokkur fólksins Málefni fatlaðs fólks Fjármál heimilisins Tengdar fréttir Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur nú beðist afsökunar á glannalegum ummælum sem hann lét falla í heitum umræðum á þingi í gær um Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. 18. febrúar 2026 15:08 Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu var ekki afgreitt úr velferðarnefnd til þriðju umræðu í morgun eins og til stóð. Stefnt er að því að ræða málið á öðrum fundi en fram undan er kjördæmavika svo málið verður í fyrsta lagi afgreitt þann 2. mars. 18. febrúar 2026 14:55 „Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Hart var tekist á um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra í þinginu í gærkvöldi, líkt og svo oft undanfarið. Ráðherra sagði þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks slá skjaldborg um ríkustu fjölskyldur landsins, eigendur útgerða, en að ljóst væri hvar þeir stæðu þegar kæmi að kjörum fátækasta fólksins í landinu. „Ömurlegt!“ var kallað úr þingsal og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, svaraði ráðherra fullum hálsi úr ræðustól, svo fullum að forseti minnti þingmenn á að gæta orða sinna að lokinni ræðu hans. 18. febrúar 2026 11:45 Misskilningur um launavísitöluna Launavísitölufrumvarpið svo kallaða er nú til meðferðar á Alþingi, og hefur málið verið talsvert í fréttum undanfarna daga. Um er að ræða eitt af lykilmálum Flokks fólksins, um að tryggja að ellilífeyrir og örorkulífeyrir taki árlega breytingum til samræmis við launavísitölu, þó þannig að fjárhæðir hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. 13. febrúar 2026 08:32 Mest lesið Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Bora eftir jarðhita á Tenerife Viðskipti erlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Fleiri fréttir Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér út rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Sjá meira
Jón Gunnarsson biðst afsökunar á orðum sínum Jón Gunnarsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur nú beðist afsökunar á glannalegum ummælum sem hann lét falla í heitum umræðum á þingi í gær um Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra. 18. febrúar 2026 15:08
Almannatryggingamálinu frestað en engar breytingar í farvatninu Frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu var ekki afgreitt úr velferðarnefnd til þriðju umræðu í morgun eins og til stóð. Stefnt er að því að ræða málið á öðrum fundi en fram undan er kjördæmavika svo málið verður í fyrsta lagi afgreitt þann 2. mars. 18. febrúar 2026 14:55
„Hvaðan kom þetta fyrirbæri eiginlega hér inn á þing?“ Hart var tekist á um frumvarp félags- og húsnæðismálaráðherra í þinginu í gærkvöldi, líkt og svo oft undanfarið. Ráðherra sagði þingmenn Sjálfstæðisflokks og Miðflokks slá skjaldborg um ríkustu fjölskyldur landsins, eigendur útgerða, en að ljóst væri hvar þeir stæðu þegar kæmi að kjörum fátækasta fólksins í landinu. „Ömurlegt!“ var kallað úr þingsal og Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, svaraði ráðherra fullum hálsi úr ræðustól, svo fullum að forseti minnti þingmenn á að gæta orða sinna að lokinni ræðu hans. 18. febrúar 2026 11:45
Misskilningur um launavísitöluna Launavísitölufrumvarpið svo kallaða er nú til meðferðar á Alþingi, og hefur málið verið talsvert í fréttum undanfarna daga. Um er að ræða eitt af lykilmálum Flokks fólksins, um að tryggja að ellilífeyrir og örorkulífeyrir taki árlega breytingum til samræmis við launavísitölu, þó þannig að fjárhæðir hækki aldrei minna en verðlag samkvæmt vísitölu neysluverðs. 13. febrúar 2026 08:32