Sport

Mæta „reyndari og erfiðari“ and­stæðingum í búrinu í Fram­heimilinu

Aron Guðmundsson skrifar
Bjarki Þór Pálsson MMA þjálfari og skipuleggjandi Glacier Fight Night og Hákon Arnórsson bardagamaður úr RVK MMA sem berst í einum af aðalbardögum kvöldsins. 
Bjarki Þór Pálsson MMA þjálfari og skipuleggjandi Glacier Fight Night og Hákon Arnórsson bardagamaður úr RVK MMA sem berst í einum af aðalbardögum kvöldsins.  Vísir/Ívar Fannar

Annað MMA bar­daga­kvöld Gla­cier Fig­ht Night fer fram í Fram­heimilinu þann 28.febrúar og munu margir af okkar bestu og efni­legustu bar­daga­köppum berjast gegn reyndari og erfiðari and­stæðingum en mættu til leiks á fyrsta kvöldið.

Fyrsta Glacier Fight night bardagakvöldið, sem jafnframt var fyrsta bardagakvöldið í MMA hér á landi í sögunni, var haldið þann 15.nóvember í Andrews Theater á Ásbrú á síðasta ári og segja má að það hafi gengið vonum framar, bæði hjá íslensku bardagafólki sem og hvað varðar viðtökur frá áhorfendum.

Þann 28.febrúar, núna í Framheimilinu, fer fram Glacier Fight Night tvö og skipuleggjendur kvöldsins hafa gefið í varðandi umgjörðina á kvöldinu líkt og Bjarki Þór Pálsson hjá Reykjavík MMA sagði frá í Bítínu á Bylgjunni á dögunum:

„Við vorum með mjög lítið pláss síðast, um sex hundruð sæti, og það var gjörsamlega uppselt. Það var verið að hringja í mann á Facebook, fólk að reyna redda miðum þannig en einnig við hurð á bardagakvöldinu sjálfu. Það var allt brjálað og því ákváðum við að stækka þetta vel í þetta skipti. Við erum að fara upp í Framheimilið og getum þar tekið við 1700 manns,“ sagði Bjarki í Bítinu á sínum tíma en þá voru nú þegar níu hundruð miðar farnir á bardagakvöldið.

Það er ljóst að áhugafólk um blandaðar bardagalistir mun fá mikið fyrir peninginn á Glacier Fight Night 2 þar sem að titilbardagar eru á dagskrá og margir af efnilegustu og bestu bardagaköppum landsins mæta til leiks á móti andstæðingum frá Frakklandi og Bretlandi. 

„Við erum að fara í mjög reynda og erfiðari andstæðinga. Þetta verður því krefjandi kvöld fyrir okkar fólk,“ sagði Bjarki Þór í Bítinu en þeir bardagar sem kynntir hafa verið til leiks hingað til lofa góðu. 

Til að mynda mun strákurinn úr Mosfellsbænum, Hákon Örn Arnórsson úr Reykjavík MMA sem vann aðalbardaga kvöldsins á Glacier Fight Night 1, mæta Ali Albazi sem er engin aukvissi og bróðir UFC bardagakappans Amir Albazi. 

Ali eyðir miklum tíma við æfingar með bróður sínum og bara síðast í dag birti hann mynd á samfélagsmiðlum eftir æfingu með fyrrverandi UFC bantamvigtar meistaranum Merab Dvalishvili.

Í hinum aðalbardagakvöldsins mun Viktor Gunnarsson úr Mjölni mæta hinum breska Caleb Mullin. 

Þá eru fleiri bardagakappar úr röðum Reykjavík MMA og Mjölni sem munu stíga inn í búrið þann 28.febrúar næstkomandi og von á sýningu.

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×