Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar 5. febrúar 2026 10:28 María prinsessa og Jóakim Danaprins ætla að flytja heim til Danmerkur með stálpuðum börnum sínum á næsta ári. Getty/Martin Sylvest Andersen Jóakim Danaprins og konan hans María prinsessa ætla að flytja heim til Danmerkur á næsta ári. Parið er búsett í Washington DC í Bandaríkjunum en stefna á flutninga heim þegar samningur Jóakims rennur út í ágúst á næsta ári, en hann starfar við danska sendiráðið í Bandaríkjunum.
María prinsessa greinir frá þessu í viðtali við danska Billet-Blaðið í dag. „Líkt og ég sagði áður þá hlakka ég til að snúa til baka til minnar vinnu og velgjörðarstarfa. Og að koma aftur til Danmerkur. Hvað gerist eftir það mun tíminn leiða í ljós,“ segir María meðal annars í viðtalinu, sem þykir sæta miklum tíðindum og aðrir danskir fjölmiðlar hafa haft eftir. Jóakim er yngsti sonur Margrétar Danadrottningar og litli bróðir Friðriks tíunda Danakonungs. Í sumar hafði Jóakim prins sjálfur sagt að hann hefði í huga að flytja aftur til Danmerkur þegar hann lýkur starfi sínu sem sérstakur sendierindreki varnar- og vopnaiðnaðar en hann var ráðinn til danska sendiráðsins í Washington DC árið 2023. Áður hefur hann gegnt sambærilegum verkefnum í danska sendiráðinu í Frakklandi, þar sem hann sótti sjálfur leiðtogaþjálfun við herskólann École Militaire. Þá mátti þó skilja að fjölskyldan útilokaði ekki að vera áfram erlendis, en nú útilokar prinsessan að það komi nokkuð annað til greina en að koma aftur til Danmerkur. María leggur áherslu á í viðtalinu að næsta árið muni hinn 16 ára gamli Hinrik greifi, sonur þeirra Maríu og Jóakims, ljúka framhaldsskólanámi en þau eiga einnig dótturina Aþenu sem er 14 ára. Hún stefni á að fara í menntaskóla í Danmörku. Fyrir á Jóakim þá Nikolai og Felix með fyrrverandi eiginkonu sinni Alexöndru.
Danmörk Kóngafólk Friðrik X Danakonungur Margrét Þórhildur II Danadrottning Mest lesið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Lífið Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum Lífið Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Lífið Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Lífið Allir gengu út af tónleikunum: „Ég fór heim og grét“ Tónlist Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Lífið Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Lífið Allt kemur í ljós ef maður á geisladrif Tónlist „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Lífið Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Lífið Fleiri fréttir Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn Sjá meira