Handbolti

Svara gagn­rýni Al­freðs: „Látum ekki þagga niður í okkur“

Aron Guðmundsson skrifar
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, stýrði sínu liði til silfurverðlauna á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta.
Alfreð Gíslason, landsliðsþjálfari Þýskalands, stýrði sínu liði til silfurverðlauna á nýafstöðnu Evrópumóti í handbolta. vísir/vilhelm

Fyrr­verandi lands­liðs­menn Þýska­lands í hand­bolta, sem stýra nú hlað­varpinu Harz­but, hafa svarað fyrir gagn­rýni lands­liðsþjálfarans Al­freðs Gísla­sonar á sín störf á meðan á EM í hand­bolta stóð.

Eftir að hafa stýrt Þýskalandi til silfurverðlauna á EM í handbolta ákvað Alfreð Gíslason að senda loks gagnrýnendum sínum tóninn.

Alfreð nafngreindi engan þegar hann skaut á gagnrýnendur í viðtali við Bild en þýskir miðlar segja ljóst að hann hafi verið að tala til fyrrverandi landsliðsmannanna Stefan Kretzschmar, Pascal Hens og Michael Kraus sem saman stýra hlaðvarpinu Harzblut.

„Við vitum öll að þeir hafa ekki mikið vit á þessu. Þeir sem eru með hlaðvarp þurfa að hafa eitthvað að tala um í hverri viku. Enginn þeirra hefur verið þjálfari. Ég veit hvernig taktískur skilningur þeirra er. Og enginn þeirra spilaði í vörn á sínum tíma,“ sagði Alfreð við Bild eftir úrslitaleikinn við Danmörku.

Þríeykið í Harzblut hafa nú svarað gagnrýni Alfreðs í nýjasta hlaðvarpsþætti sínum.

„Í fyrsta lagi viljum við byrja á því að óska þér til hamingju með silfurverðlaunin,“ segir Kraus í þættinum og vill koma því skýrt á framfæri að þríeykið séu miklir stuðningsmenn þýska landsliðsins og vilji það besta fyrir liðið.

„En við látum ekki þagga niður í okkur. Ef það koma slæmir leikir hjá liðinu, eins og á nýafstöðnu Evrópumóti, eins og er yfirleitt raunin á öllum stórmótum, þá munum við halda áfram að gagnrýna.“

Að sjálfsögðu vilji menn frekar fá hrós heldur en gagnrýni.

„En það er ekki það sem við erum að eltast við. Þegar að gengur vel, þá munum við hrósa.“

Kraus segir þá félagana hins vegar taka gagnrýnina til sín það sé eðlilegt að Alfreð svari fyrir sig.

„Sér í lagi þar sem að hann er með silfurmedalíu um hálsinn.“  

Stefan Kretzschmar tók í svipaðan streng og Kraus og segist hafa spjallað nokkrum sinnum við Alfreð símleiðis á meðan á EM stóð.

„Ég mun ekki tjá mig frekar um þetta mál. Mín virðing fyrir Alfreð Gíslasyni sem manneskju er of mikil.“ 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×