Sport

Extra­leikarnir: Bannað að bíta og nýtt met í gryfju­hlaupi

Sindri Sverrisson skrifar
Andri Már Eggertsson og Tómas Steindórsson kunna alveg að þykjast vera fimleikakappar.
Andri Már Eggertsson og Tómas Steindórsson kunna alveg að þykjast vera fimleikakappar. Sýn Sport

Félagarnir Nablinn og Tommi Steindórs héldu sig í fimleikasalnum og kepptu í ansi krefjandi „gryfjuhlaupi“, í nýjustu þrautinni í Extraleikunum. 

Leikarnir eru hluti af Körfuboltakvöldi Extra á Sýn Sport Ísland á mánudagskvöldum. Keppnina má sjá í spilaranum hér að neðan.

Klippa: Extraleikarnir - Gryfjuhlaupið mikla

Þó að þessu sinni hafi ekki verið um viðurkennda keppnisgrein að ræða þá var hún ákaflega krefjandi, að minnsta kosti fyrir suma, enda gryfjuhlaup notað sem þrekæfing fyrir fimleikafólk í frábæru formi. 

Ákveðnar reglur voru þó settar fyrir keppni og meðal annars bannað að bíta.

Það að ekki sé almennt keppt í gryfjuhlaupi gerir líka að verkum að sigurtíminn hlýtur að teljast sem Íslandsmet, eða jafnvel heimsmet, að minnsta kosti í ákveðnum þyngdarflokki.

Menn létu svo skotin dynja í sófanum eftir að keppni lauk og er spennan áfram mikil í stigakeppni leikanna. Nú vantar strákana bara nýjar hugmyndir að keppnisgreinum, eftir að hafa meðal annars leikið listir sínar í frjálsíþróttum, fótbolta, körfubolta, handbolta og fimleikum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×