Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2026 15:11 James P. Gorman stjórnarformaður, Josh D’Amaro verðandi forstjóri, Dana Walden sem verður næstráðandi og Robert A. Iger fráfarandi forstjóri. AP/Walt Disney Stjórn stórfyrirtækisins Walt Disney hefur ráðið Josh D‘Amaro til að taka við sem forstjóri af Robert A. Iger. D‘Amaro, sem hefur á undanförnum árum stýrt skemmtigarða- og skemmtiferðaskipadeild fyrirtækisins, verður þar af leiðandi níundi forstjóri Disney en 102 ár eru liðin frá því það var stofnað.
D‘Amaro mun taka við starfinu á aðalfundi Disney í næsta mánuði, samkvæmt yfirlýsingu á vef félagsins. Skemmtigarða- og skemmtiferðaskipadeild Disney hefur skilað miklum hagnaði á undanförnum árum en D‘Amaro eru sagður hafa borið sigur úr býtum gegn Dana Walden í baráttunni um forstjóratitilinn, samkvæmt frétt Wall Street Journal. Walden hefur stýrt skemmtiefnisdeild Disney og þar með hefur hún meðal annars haldið utan um streymisveitur fyrirtækisins, kvikmyndaframleiðslu og fréttastöðvar. Hún fær stöðuhækkun og mun heyra bein undir D‘Amaro. Í frétt WSJ segir að stjórn Disney hafi lagt mikið kapp á að keyra forstjóraskiptin í gegn eins vandræðalaust og mögulegt er. Árið 2020 tók Bob Chapek, þáverandi yfirmaður skemmtigarða Disney, við stöðunni af Bob Iger. Hann var þó rekinn tveimur árum síðar og Iger ráðinn aftur. Nú er hann að hætta aftur. D‘Amaro stendur frammi fyrir því erfiða verkefni að auka vöxt hjá Disney en frá 2021 hefur virði hlutabréfa félagsins lækkað um nærri því helming en virðið hefur í raun staðið í stað undanfarin þrjú ár. James Gorman, stjórnarformaður, segir í áðurnefndri yfirlýsingu að D‘Amaro búi yfir sterkri sýn varðandi framtíð Disney og hafi djúpan skilning á fyrirtækinu og þeim anda sem gert hefur Disney einstakt.
Disney Mest lesið „Þetta var náttúrulega ákveðið áfall“ Viðskipti innlent Lucky records gjaldþrota en verslunin lifir Viðskipti innlent Miklar launahækkanir stærra vandamál en verðtryggingin Viðskipti innlent Fyrsta skrefið stigið um áramót að afnámi verðtryggingar Viðskipti innlent Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Viðskipti erlent Otti Þór og Steinar frá Bónus til Samkaupa Viðskipti innlent EX60 gerbreytir veruleika rafökumanna Samstarf Vilhjálmur Theodór til Varðar Viðskipti innlent Lækkar tolla á Indland Viðskipti erlent Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Viðskipti erlent Fleiri fréttir Skemmtigarðastjóri Disney verður forstjóri Sameinaði SpaceX og xAI og vill reisa gagnaver á braut um jörðu Lækkar tolla á Indland Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira