Chomsky sagði Epstein að hann dreymdi um Karíbahafseyju Kjartan Kjartansson skrifar 3. febrúar 2026 15:08 Noam Chomsky ávarpar ráðstefnu í gegnum fjarfundarbúnað árið 2022. Hann er nú 97 ára gamall. Vísir/EPA Noam Chomsky, einn áhrifamesti málvísindamaður og stjórnmálaskýrandi heims, átti í nánu vinfengi við Jeffrey Epstein og lét sig meðal annars dreyma um að heimsækja Karíbahafseyju. Hann virðist hafa gefið Epstein ráð skömmu fyrir andlát hans í fangelsi.
Milljónir skjala sem bandarísk yfirvöld hafa birt úr rannsókn sinni á Epstein vegna mansals og kynferðisbrota hafa afhjúpað tengsl fjölda þekktra einstaklinga við níðinginn alræmda. Í mörgum tilfellum héldu þau tengsl áfram löngu eftir að Epstein hlaut dóm fyrir að falast eftir vændi frá stúlkum undir lögaldri árið 2008. Einn þeirra sem var í reglulegum samskiptum við Epstein var Chomsky. Hann hefur áður sagt að hann hafi fyrst og fremst fengið fjármálaráð frá Epstein en skjöl sem voru birt í síðustu viku sýna að tengsl þeirra voru mun nánari en það. Epstein virðist þannig hafa farið í frí með Chomsky og eiginkonu hans Valeriu. Í tölvupósti frá 2016 lagði Epstein til að Chomsky hitti sig í New York eða Karíbahafinu. Vísaði hann til fyrri ferðar þeirra saman sem hann hefði notið. „Við gerðum það líka, mjög mikið. Valeria er alltaf til í New York. Ég læt mig hins vegar dreyma um Karíbahafseyjuna,“ skrifaði Chomsky til baka. Breska blaðið The Guardian segir ekkert liggja fyrir um að Chomsky hafi átt við einkaeyju Epstein í Karíbahafi þar sem mörg brota hans gegn börnum áttu sér stað. Ráðlagði Epstein að hunsa írafárið Árið 2019, ellefu árum eftir að Epstein hlaut dóm fyrir kynferðisbrot, og nokkrum mánuðum áður en hann svipti sig lífi í fangelsi virðist Chomsky hafa sent honum skilaboð með hughreystingu og ráðum í því fjölmiðlafári sem auðkýfingurinn stóð þá frammi fyrir vegna brota hans. „Besta leiðin áfram er að hunsa þetta,“ skrifaði Chomsky í skilaboðum sem Epstein áframsendi á lögmann sinn og blaðafulltrúa. „Þetta á sérstaklega við núna vegna þeirrar móðursýki sem hefur gripið um sig vegna misnotkunar á konum sem hefur náð slíkum hæðum að það er talinn glæpur verri en morð að véfengja ásakanir,“ á Chomsky að hafa skrifað. The Guardian segir að Chomsky hafi ekki svarað fyrirspurn um samskiptin, þar á meðal hvort textaskilaboðin frá 2019 séu ósvikin. Vildi komast í samband við starfsmannastjóra Trump Þá vekur sérstaklega athygli að Chomsky sett sig í samband við Steve Bannon, fyrrverandi skrifstofustjóra Donalds Trump í Hvíta húsinu, með milligöngu Epstein, Skrifaði Chomsky til Bannon að þeir hefðu um margt að ræða. Chomsky hefur verið gríðarlega áhrifamikill á meðal vestrænna vinstrimanna og andheimsvaldasinna um árabil, ekki síst fyrir skrif hans gegn utanríkisstefnu Bandaríkjastjórnar. Bannon er aftur á móti holdgervingur bandaríska hægrisins á tímum Trump. Chomsky hafði samband við hann um ári eftir að hann lét af störfum í Hvíta húsinu. Bannon svaraði að hann væri til í að hitta málvísindamanninn.
Mál Jeffrey Epstein Bandaríkin Vísindi Mest lesið Drengur á slysadeild eftir árás í Laugardalslaug Innlent Sautján ára Íslendingur dæmdur í ellefu mánaða fangelsi í Danmörku Innlent „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ Innlent Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Innlent „Grafa undan því sem hefur verið byggt upp á áratugum“ Innlent Réðst að hópi drengja í sundlaug Innlent Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Innlent „Málið er í öllu tilliti afar óheppilegt“ Innlent Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Erlent Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Erlent Fleiri fréttir Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Íran gerir árásir á Barein og Kúveit í kjölfar árása Bandaríkjanna Tónlistarhátíðum aflýst vegna hita Stór hluti barna enn á samfélagsmiðlum hálfu ári eftir bannið Tala látinna hækkar og gremja íbúa eykst Bandaríkjaher heldur árásum áfram í Íran Forseti Serbíu hyggst segja af sér 41,5 gráður í Þýskalandi og hitamet slegið Stór skjálfti í Afganistan Núverandi hitabylgja „sú alvarlegasta sem mælst hefur“ Dagurinn í dag sé örlagaríkur fyrir leit og björgun Bandaríkin bregðast við drónaárás með annarri árás Fyrrverandi ráðgjafi Trumps játar illa meðferð á trúnaðargögnum Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Finnst sturlað að Watergate hafi fellt Nixon Taugaeiturshúsið auglýst til sölu Madsen neitað um leyfi til að gifta sig Konungur á meðal skattakónga Bretlands Áfengisbann í París um helgina Ein umfangsmesta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leitað í rústum bygginga og þúsunda er saknað Óttast rússneskar ögranir gegn Eystrasaltsríkjunum Rekja hundruð dauðsfalla á ári til stærri bíla Elon Musk skipað að bera vitni undir eið „Ég á vin og bróðir hans er enn fastur undir rústum byggingar“ Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Óttast óeirðir við samkomu þýsks fjarhægriflokks Hamfarir í Venesúela og andstaða við hvalveiðar Engar hjálparbeiðnir borist borgaraþjónustunni Sjá meira