Lífið

Hvernig breytirðu þér í Dag Sigurðs­son?

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Marina Mamic tók sig til og umbreytti sér í Dag Sigurðsson, þjálfara króatíska handboltalandsliðsins.
Marina Mamic tók sig til og umbreytti sér í Dag Sigurðsson, þjálfara króatíska handboltalandsliðsins.

Ein stærsta stjarna nýafstaðins Evrópumeistaramóts í handbolta er án efa Dagur Sigurðsson sem stýrði Króötum til bronsverðlauna og jós úr skálum reiði sinnar á eftirminnilegum blaðamannafundi. Dagur er orðinn svo mikil stjarna að króatískur förðunarfræðingur setti sig í líki þjálfarans.

Dagur Sigurðsson var fyrirliði íslenska landsliðsins um árabil, skoraði 399 mörk í 215 landsleikjum og hefur átt farsælan feril sem þjálfari. Dagur þjálfaði þýska landsliðið til gullverðlauna á EM 2016 og bronsverðlauna á Ólympíuleikunum sama ár, þjálfaði Japani frá 2017 til 2024 og tók þá við þjálfun króatíska landsliðsins.

Dagur byrjaði tíma sinn hjá Króatíu vel og kom þeim á Ólympíuleikana 2024 þar sem uppskeran var þó aðeins níunda sæti. Síðan þá hefur liðið farið með himinskautum, hrepptu silfur á Heimsmeistaramótinu í fyrra og brons á EM núna.

Sérstaka athygli vakti á mótinu þegar Dagur lét mótshaldara heyra það fyrir lélega skipulagningu mótsins sem kæmi niður á heilsu leikmanna. Fyrir utan bronsið og blaðamannafundinn frumsýndi Dagur líka óbeint kærustu sína, Ásu Ingu Þorsteinsdóttur, sem hann hefur verið að slá sér upp með undanfarna mánuði.

Sjá einnig: Kossaflens hjá Degi og Ásu í króatískri sigurvímu

Fjölmiðlar og sérfræðingar hafa keppst við að lofa þjálfarann en sennilega hefur enginn sýnt honum eins mikinn heiður og Marina Mamic, förðunarfræðingur og TikTok-stjarna.

@marinamamic Evo ukratko zašto smo izgubili 🤷🏼‍♀️💔 Borili su se i možemo bit ponosni 🫶🏼 #dagursigurdsson #makeup #makeuptrasformation #hrvatska #croatia ♬ original sound - Marina Mamić

Fyrir tveimur dögum síðan, í undirbúningi fyrir bronsleikinn, birti hún förðunarmyndband þar sem hún var búin að breyta sér í þjálfarann og sama dag endurlék hún blaðamannafund hans frá mótinu. 

Í gær birti Marina svo þriðja myndbandið þar sem hún sýndi frá öllu ferlinu og hvernig hún umbreytti sér í þjálfarann vinsæla.

@marinamamic Dagur Sigurðsson makeup transformacija ✌🏼 Dosta teška transformacija moram priznati 🫶🏼 #dagursigurdsson #makeup #makeuptransofrmation #fyp ♬ original sound - Marina Mamić

Tengdar fréttir

75 prósent tapleikja á síðustu tveimur stórmótum á móti Degi Sig

Dagur Sigurðsson vann verðlaun á öðru stórmótinu í röð þegar Króatar tryggðu sér bronsverðlaun á Evrópumótinu í handbolta með sigri á Íslendingum í gær. Dagur virðist vera orðinn algjört „kryptonite“ fyrir íslenska landsliðsþjálfarann Snorra Stein Guðjónsson.

Biður Dag afsökunar

Króatinn Nenad Klja­jic, fyrr­verandi lands­liðs­maður og hand­boltaþjálfari, sem var hluti af liði Króatíu sem vann Ólympíugull á leikunum í At­lanta árið 1996, biður Dag Sigurðs­son, lands­liðsþjálfara Króatíu af­sökunar í færslu á sam­félags­miðlum í dag.

Ræða Dags bar árangur og EHF lofar breytingum

Evrópska handknattleikssambandið hefur sent frá sér aðra yfirlýsingu, eftir reiðilestur Dags Sigurðssonar á blaðamannafundi fyrir undanúrslitaleik Króatíu og Þýskalands í gær. Sambandið lofar því nú að minnka leikjaálagið og bæta skipulagið. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.