Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 1. febrúar 2026 19:19 Maðurinn lét loks til leiðast eftir að hafa staðið uppi í fjallshlíðinni í eina og hálfa klukkustund. Eysturoyarportalurin Fyrr í dag varð minniháttar umferðarslys við munna Leirvíkurganganna í Nyrðri-Götu í Færeyjum. Ökumaðurinn hljóp af vettvangi og upp í fjallið við munna gangnanna. Lögregla kom á vettvang og þyrla sömuleiðis og á endanum tókst að koma honum niður heilum á húfi.
Umferðarslysið átti sér stað upp úr hádegi í dag. Ökumaðurinn hljóp þá rakleiðis upp með hlíðum fjallsins sem Leirvíkurgöngin eru hoggin í og neitaði að koma þaðan niður. Klippa: Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Lögregla kom skömmu seinna á vettvang og eftir að hafa reynt í á annan klukkutíma að sannfæra manninn um að klifra niður úr fjallshlíðinni var þyrla kölluð út. Á endanum um þrjúleytið lét maðurinn til leiðast og honum var ásamt nokkrum lögreglumönnum flogið niður á jafnsléttu. Líkt og Eysturoyarportalurin tekur fram í umfjöllun sinni af málinu liggur engin skýring fyrir á því hvers vegna maðurinn tók til fótanna og dvaldi uppi í fjalli allan þennan tíma en til allrar lukku er hann óhultur og lögreglumennirnir sömuleiðis. Slysið var minniháttar og ekkert tjón á fólki.Eysturoyarportalurin „Ég get ekkert sagt um hvers vegna það var en viðkomandi ökumaður spretti af stað og upp í hamar,“ hefur Kringvarpið eftir Jóannesi Østerø varðstjóra hjá lögreglunni þar í landi.
Færeyjar Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira