Viðskipti innlent

Siggi til Varist

Atli Ísleifsson skrifar
Siggi Pétursson, nýr vöruþróunarstjóri Varist, og Hallgrímur Björnsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.
Siggi Pétursson, nýr vöruþróunarstjóri Varist, og Hallgrímur Björnsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

Hugbúnaðarfyrirtækið Varist hefur ráðið Sigga Pétursson í stöðu vöruþróunarstjóra fyrirtækisins.

Í tilkynningu segir að Siggi hafi yfir tuttugu ára starfsreynslu erlendis í tækni og vöruþróun hjá leiðandi netöryggisfyrirtækum á heimsvísu og hafi gegnt lykilhlutverki hjá bandarísku fyrirtækjunum Oracle, AWS (dótturfyrirtækis Amazon) og SentinelOne.

Haft er eftir Hallgrími Björnssyni, framkvæmdastjóra Varist, að hann fagni því að fá Sigga til liðs við öflugt teymi starfsfólks sem fyrir sé hjá fyrirtækinu. „Hann hefur yfirgripsmikla reynslu og þekkingu á þróun umfangsmikilla og skalanlegra netöryggislausna sem fellur vel að starfsemi Varist. Siggi hefur starfað lengi á erlendum vettvangi og mun vera okkur afar mikilvægur í samstarfi við fjölda erlenda jafnt sem og innlenda viðskiptavini,“ segir Hallgrímur.

Varist sér­hæf­ir sig í netör­ygg­is­lausn­um á sviði víru­svarna. Í tilkynningunni segir að meðal viðskipta­vina Varist séu mörg stærstu tæknifyr­ir­tæki heims en lausn­ir fyr­ir­tæk­is­ins skanna allt að 400 millj­arða skráa fyr­ir vírus­um á dag og millj­arðar ein­stak­linga eru varðir gegn netárás­um með vör­um Var­ist.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×