Forritara stærðfræðileiks tekið eins og rokkstjörnu Stefán Árni Pálsson skrifar 26. janúar 2026 20:02 Fjölskylda á flakki. Íris E. Gísladóttir og Mathieu Grettir Skúlason eru liðlega þrítug og dvelja þessi misserin í París ásamt börnum sínum tveimur, þeim Evu 13 ára og Eric 4 ára. Ekki bara af því að þeim finnst frönsku vínin svo ljúffeng eða croissanturnar svo kræsilegar heldur var það samdóma niðurstaða fjölskyldunnar að í París gætu þau lifað betra lífi sem frumkvöðlar en á Íslandi.
Þau stofnuðu fyrir nokkrum árum sprotafyrirtækið Evolytes utan um stærðfræðileik sem þau hafa nú innleitt víða í íslenskum grunnskólum og eru að breiða leikinn út um heiminn. Stærstu vaxtarmarkaðir þeirra eru á Indlandi og í Suður-Ameríku og þess vegna ákváðu þau að hreiðra um sig í París, nálægt Orly og Charles de Gaulle-flugvöllunum til að einfalda linnulítið flakk þeirra á milli heimsálfa og stytta þannig fjarveru frá börnunum tveimur. Eða, svo þau geti tekið börnin með á flakkið án þess kostnaðar sem fylgir því að borga fyrst fluglegg frá Íslandi til meginlandsins. Forritar leikinn Lóa Pind Aldísardóttir og Ívar Kristján Ívarsson myndatökumaður heimsóttu þessa öflugu fjölskyldu í daglega lífið þeirra í París í haust og svo aftur þegar Íris og Mathieu fóru í vinnuferð til Chile í desember í skóla þar sem stærðfræðileikurinn Evolytes hefur verið í prufukeyrslu um hríð. Þar sáu þau hvernig uppnám varð meðal nemendanna þegar Mathieu - sem forritar leikinn - mætti inn í bekkinn. Honum var tekið eins og rokkstjörnu. Aðdáendur umkringdu hann og fengu eiginhandaráritanir. Heimsóknir Lóu og Ívars til Parísar og Chile er í 2. þætti af sjöundu þáttaröð af Hvar er best að búa? sem varð aðgengilegur á streymiveitunni Sýn+ í gær. Hann verður seinna sýndur í opinni dagskrá Sýnar. Í þáttaröðinni heimsækir Lóa alls konar fólk, m.a. tvær íslenskar konur sem féllu fyrir ítölsku eyjalífi, kjarnafjölskyldu úr Hafnarfirði sem hafnaði íslenska lánakerfinu og eiga nú skuldlaust hús í spænskri sveit, körfuboltafjölskyldu sem hefur verið í fjarbúð milli ótal landa og deilir nú tíma sínum milli Njarðvíkur og Póllands, ungri konu sem stofnaði veislutertufyrirtæki í Köben og konu á miðjum aldri sem fann ástina í örmum Spánverja á Djúpavogi sem leiddi þau til Andalúsíu þar sem við fylgjumst með brúðkaupi þeirra. Og loks kynnumst við hjónum á besta aldri sem höfðu kjark til að setjast að í alræmdri stórborg í Nígeríu umkringd vopnuðum öryggisvörðum. Í myndbandinu sem hér fylgir má sjá brot úr þættinum. Klippa: Frumkvöðlafjölskylda á flakki um heiminn Framleiðandi og leikstjóri þáttanna er Lóa Pind Aldísardóttir, myndatökumenn eru Ívar Kristján Ívarsson og Hákon Pálsson og klippingu annaðist Magnús Ingvar Bjarnason. Framleitt af Lóu Production fyrir Sýn en hægt er að sjá alla þættina inni á streymisveitunni Sýn+.
Hvar er best að búa? Íslendingar erlendis Frakkland Mest lesið Eitt frumlegasta hús Reykjavíkur á sölu Lífið Sjóðheitt listapar selur smart einbýli Lífið Einfalt ráð til að venja barn strax af bleyju Lífið Kjánalegar klisjur og kærulausir kappar Gagnrýni Stjarna úr Married at First Sight látin Bíó og sjónvarp Pétur Marteinn Páll Urbancic er látinn Menning „Heimurinn bara kollvarpaðist“ Lífið Tónlistarpar á von á sumarbarni Lífið Þungunarrof megi vera auðvelt val Lífið „Af hverju ertu ekki búinn að hringja í mig?“ Lífið Fleiri fréttir „Af hverju ertu ekki búinn að hringja í mig?“ Kynusli, ærslagangur og nasistar í kjallaranum Sveppi og Sigurður tignarlegir aftur á bak Einfalt ráð til að venja barn strax af bleyju Þungunarrof megi vera auðvelt val Eitt frumlegasta hús Reykjavíkur á sölu „Heimurinn bara kollvarpaðist“ Tónlistarpar á von á sumarbarni Sjóðheitt listapar selur smart einbýli Skálmöld gæddi sér á hráefni sögulegs „ógeðsdrykkjar“ Annie Mist gaf prinsinum nafn Geislandi gellur í þrumustuði á Edition „Kynslóðin sem ól okkur upp er meira og minna meðvirk” Getur varla horft á sjálfan sig eftir eineltið Stjörnulífið: „Bráðum fær hann að afmeyja mig“ Fólk með kynlífsvanda fær ekki þá hjálp sem það þarf „Eruð þið í alvörunni að handtaka Justin Timberlake?“ Kio Briggs hágrét á tökustað Engla alheimsins Lærimeistari Charlie Kirk og faðir klappstýru nútímans látinn Krakkatía vikunnar: Mario, vöfflur og ólöghlýðinn kisi Ein veirusýking sneri öllu lífinu á hvolf Snekkju skattsvikara siglt inn í Eyjafjörðinn Nicholas Brendon er látinn Fór lögblind í gegnum doktorsnám Landsliðsmaður í ADHD sem lifir á húmornum Fréttatía vikunnar: Vextir og verðlaun á verðlaun ofan Taylor segir myndbandið hluta af rógsherferð en Dakota vill nálgunarbann Alaska 1867 er nýliði ársins Ástrós og Adam eiga von á öðru Gjörbreytti íbúðinni með einni tilfærslu Sjá meira