Ljóst hverjir mætast í Super Bowl eftir snjóbyl og spennu Sindri Sverrisson skrifar 26. janúar 2026 09:02 Christian Gonzalez sáttur eftir að hafa stolið sendingu í lokaleikhlutanum í sigri New England Patriots á Denver Broncos, í snjónum í Denver í gær. Getty/Matthew Stockman Snjóbylur setti sinn svip á gærkvöldið þegar niðurstaða fékkst í það hvaða lið munu mætast í Ofurskálarleiknum, eða Super Bowl, sunnudaginn 8. febrúar.
Það verða lið Seattle Seahawks og New England Patriots sem mætast í úrslitaleik NFL-deildarinnar sem ávallt er beðið eftir með svo mikilli eftirvæntingu. Þessi sömu lið mættust einmitt í Super Bowl árið 2015 þar sem að Patriots unnu 28-24 sigur. Þetta verður fyrsti Ofurskálarleikur Patriots síðan Tom Brady leiddi liðið að sjötta meistaratitlinum árið 2019. Seahawks hafa aftur á móti bara unnið einu sinni, árið 2014. Drew Lock, Sam Darnold og Jalen Milroe fagna sæti Seattle Seahawks í Super Bowl.Getty/Steph Chambers Super Bowl fer að þessu sinni fram í Santa Clara í Kaliforníu, á heimavelli San Francisco 49ers. Það var mikil spenna í gærkvöld þegar undanúrslitin fóru fram. Patriots tryggðu sér AFC-meistaratitilinn með 10-7 sigri á Denver Broncos en óhætt er að segja að veðrið hafi sett sterkan svip á þann leik. THE SNOW TIME LAPSE IN THE AFC CHAMPIONSHIP GAME IN DENVER IS ABSOLUTELY REMARKABLE.TO START THE SECOND HALF, THERE WAS ZERO SNOW ON THE FIELD, AND THEN SUDDENLY IN THE FOURTH QUARTER A BLIZZARD ABRUPTLY APPEARED.HAVE NEVER SEEN THIS BEFORE. pic.twitter.com/JzKGbKL0z3— MLFootball (@MLFootball) January 25, 2026 Þegar leið á leikinn varð völlurinn nefnilega snævi þakinn og ómögulegt að greina línurnar á grasinu. Leikstjórnandi Patriots, Drake Maye, hljóp með boltann í endamarkið í eina snertimarki liðsins en Broncos voru án síns aðalleikstjórnanda, Bo Nix, vegna meiðsla. Öllu meira var skorað þegar Seahawks tryggðu sér NFC-meistaratitilinn með því að vinna Los Angeles Rams, 31-27. Sam Darnold hjá Seahawks og Matt Stafford hjá Rams köstuðu báðir fyrir þremur snertimörkum í leiknum.
NFL Ofurskálin Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir „Mjög nálægt þessu og fáum sanngjarna umspil núna“ Líf og Emelía með: Hópurinn sem á að taka næstsíðasta skrefið að HM í Brasilíu Dregið í bikarnum: Meistararnir fá gesti úr Garðabæ Sjáðu Þorstein kynna hópinn fyrir HM-leiki við Króata „Meira en tvö stig undir“ Braut kynferðislega á Andy Carroll Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Ljót meiðsli og ælt á völlinn Yoro ekki til Íslands „Væri fínt ef þetta væru sex mánuðir“ Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Grip ársins? „Þetta er út í hött“ George Gillett látinn Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Leikmenn Heimis funda á morgun fyrir leik gegn Ísrael Dauði varnarmannsins Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Selfyssingar syrgja Þjóðadeildin fer af stað í beinni Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Eriksen yfirgefur Wolfsburg Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Garðar Ingi með þrjú mörk og Ómar og Gísli flugi áfram „Þær héldu að þær myndu labba yfir okkur“ „Skortur á einbeitingu og svo bara hrynur þetta“ Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik - Czarni 2-6 | Blikar flengdir á pólskan máta Sjá meira