Átján ára orðin næstfljótust í sögu Íslands Sindri Sverrisson skrifar 20. janúar 2026 12:03 Christina Alba Marcus Hafliðadóttir á sprettinum í Laugardalshöll. FRÍ Frjálsíþróttakonan unga Christina Alba Marcus Hafliðadóttir úr Fjölni hljóp á stórkostlegum tíma í 60 metra hlaupi í Laugardalshöll um helgina.
Christina Alba er aðeins 18 ára gömul en getur núna státað sig af því að vera næstfljótasta hlaupakona í sögu Íslands. Aðeins Íslandsmethafinn Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir hefur hlaupið 60 metra hlaup hraðar en Christina Alba sem hljóp um helgina á 7,44 sekúndum á Meistaramóti Íslands í flokki 15-22 ára. Um er að ræða nýtt aldursflokkamet í hópi 18-19 ára og var Christina Alba aðeins 9/100 úr sekúndu frá Íslandsmeti Guðbjargar sem hún setti fyrir þremur árum, þá 22 ára gömul. Christina Alba Marcus Hafliðadóttir fær hér knús frá Júlíu Mekkín Guðjónsdóttur sem fékk bronsið um helgina.FRÍ Christina Alba var 20 sekúndubrotum á undan ÍR-ingnum Eir Chang Hlésdóttur í mark og Júlía Mekkín Guðjónsdóttir úr ÍR hlaut svo brons á 8,03 sekúndum. Christian Alba hafði best hlaupið á 7,60 sekúndum, á Aðventumóti Ármanns í desember, en náði með sinni gríðarmiklu bætingu um helgina að fara upp fyrir nokkrar hlaupakonur og í 2. sæti afrekslistans. Hún náði 1/100 úr sekúndu betri tíma en Tiana Ósk Whitworth sem er í 3. sæti.
Frjálsar íþróttir Mest lesið Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Golf Mikið fjör en engin mörk hjá Kólumbíu og Portúgal og Kongó skaust áfram Fótbolti Varamaðurinn kramdi hjörtu Írana og Messi skoraði sjötta markið sitt á HM Fótbolti Svona líta 32-liða úrslitin á HM út Fótbolti Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Fótbolti Tveir kantmenn gætu verið úr leik hjá Evrópumeisturunum Fótbolti Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Fótbolti Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Fótbolti Elísa vann aftur á Ítalíu Sport Bellingham braut ísinn og England vann riðilinn Fótbolti Fleiri fréttir Maður dagsins á HM: Kominn með fleiri mörk á HM en allt síðasta tímabil Argentína datt í lukkupottinn: Greið leið í undanúrslitin Svona líta 32-liða úrslitin á HM út Varamaðurinn kramdi hjörtu Írana og Messi skoraði sjötta markið sitt á HM Mikið fjör en engin mörk hjá Kólumbíu og Portúgal og Kongó skaust áfram Frá Sauðárkróki til Sarajevo: „Ótrúlega skemmtileg umbreyting og hentar mér vel“ Mickelson sýndi eiginkonu keppinautar nektarmynd af sér Dagskráin í dag: Stórir leikir í Bestu deildinni Króatar tóku annað sætið af Ganverjum Kólumbía - Portúgal | Toppsæti riðilsins undir Bellingham braut ísinn og England vann riðilinn Bielsa með böggum hildar: „Skildi ekkert eftir mig fyrir úrúgvæskan fótbolta“ Tveir kantmenn gætu verið úr leik hjá Evrópumeisturunum Xabi Alonso vill fá Xhaka til Chelsea KR skoraði sex og fór á toppinn Ummæli Tuchels um Reece James vekja furðu: „Enginn gat séð þetta fyrir“ Sextán ára bjargaði Gróttu á Húsavík Russell náði ráspólnum á umdeildan hátt Jöfnuðu í uppbótartíma Elísa vann aftur á Ítalíu Fullviss að möguleg félagaskipti Anderson trufli hann ekki Malmö valtaði yfir Kristianstad 91 árs og mættur á sitt 18. heimsmeistaramót Tíu ár frá kraftaverkinu í Nice Haraldur Franklín nálgast Opna breska Varsjáin tók sæti í 32 liða úrslitum frá Írönum Þjóðhátíð þegar Grænhöfðaeyjar komst áfram Skiptar skoðanir á Messi og Ronaldo umræðunni í Eyjum Spyr hvort VAR sé orðið happadrætti á þessu HM Tyrkland yfirgefur HM sem „heimsmeistari“ Sjá meira