Hús Björns og Hafdísar það dýrasta sem hefur verið selt Lovísa Arnardóttir skrifar 11. janúar 2026 13:23 Húsið er á Arnarnesi í Garðabæ. Instagram og PK Arkitektar Björn Kristmann Leifsson og Hafdís Jónsdóttir, eigendur World Class, keyptu í desember af félaginu Í toppformi einbýlishús sem stendur við sjávarlóð á Haukanesi í Garðabæ. Verð hússins var 1,2 milljarðar samkvæmt þinglýstu afsali. Fyrst var greint frá á vef Viðskiptablaðsins.
Í frétt Viðskiptablaðsins segir að miðað við kaupverðið í afsali sé um að ræða dýrasta einbýlishús sem selt hafi verið á Íslandi, sé miðað við opinbera þinglýsta kaupsamninga. Fjallað var um það í mars árið 2024 að hús fjölmiðlakonunnar Ingu Lindar Karlsdóttur við Mávanes hefði verið það dýrasta sem hefði verið selt. Það seldist á 850 milljónir króna. Fjallað var um það á vef Smartlands fyrir tæpu ári síðan að Björn og Hafdís hefðu skálað í húsinu. Þar kom fram að hjónin hefðu fest kaup á lóðinni í janúar árið 2016. Þá hafi félagið Laugar ehf., sem er í eigu hjónanna, verið skráð fyrir kaupunum. Í desember árið 2020 hafi félagið afsalað eigninni til félagsins Í toppformi ehf. sem er líka í eigu hjónanna og Sigurðar Leifssonar. Fimm árum síðar, og níu árum eftir að þau keyptu lóðina, virðast þau flutt inn og eignin skráð á þeirra nafn. Í frétt á Vísi frá árinu 2017 um kaup þeirra á lóðinni kom fram að lóðin hafi áður verið í eigu Hjörleifs Jakobssonar fjárfestis sem var búinn að láta teikna húsið og byrjaður að steypa grunninn. Byggingarleyfið var fyrir 592 fermetra húsi og 62 fermetra bílskúr en alls er lóðin 1.467 fermetrar. Í frétt Viðskiptablaðsins kemur fram að húsið er hannað af Pálmari Kristinssyni arkitekt. Pálmar er menntaður arkitekt úr arkitektaskólanum í Árósum í Danmörku og úr Háskólanum í Tókýó í Japan. Pálmar á og rekur arkitektastofuna PK arkitekta. Meðal annarra verka hans eru sendiráð Íslands í Berlín, Turninn við Höfðatorg, Hafnartorg og Garðheimar auk fjölda einbýlishúsa. Hægt er að skoða húsið nánar hér. Húsið er stórt og lóðin sem fylgir því líka. PK Arkitektar Húsið er alls um 660 fermetrar að stærð. Í því er að finna tæplega 70 fermetra bílskúr, heilsulind auk þess sem því fylgir stór garður.
Fasteignamarkaður Hús og heimili Garðabær Líkamsræktarstöðvar Mest lesið Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Lífið Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið Lífið Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Lífið Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Lífið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Lífið Hvað veistu um… Djúpavog? Lífið Skvísur í svakalegu stuði á Svikasögum Menning Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Lífið Ein heitasta leikkona landsins á lausu Lífið Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Lífið Fleiri fréttir Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Systkinin kítast: „Mættir alveg mæta meira upp í bústað og vinna“ Diljá Mist skikkuð í smá hvíld Cindy Crawford óhuggandi eftir andlátið „Mjög óraunveruleg og full af ást“ Hvað veistu um… Djúpavog? Gjörningur til heiðurs pabba sem féll fyrir eigin hendi Ein heitasta leikkona landsins á lausu Einstakt einbýli Sigurðar og Láru Stjörnum prýdd fyrsta frumsýning vetrarins Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár Sonur Cindy Crawford er látinn Stjörnulífið: „Fer þér ekki vel, þessi drjóli“ Sjóðurinn tómur Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul Krakkatía vikunnar: Nýjasti kisinn, rjúpa og vopn „Okkur langar bara til þess að gera þetta allt saman aftur“ Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Örvar og María Elísabet nýtt listapar Segir af sér eftir að hafa beitt mótmælendur ofbeldi „Maður getur varla beðið um meira“ Bakaríið í beinni útsendingu „Fóturinn á mér er ekki bólginn af því að ég missti barnið mitt“ Fréttatía vikunnar: Danir, pósthólf og Louis Vuitton Macklemore svarað Staðgöngumóðir var það Yfir sjöhundruð manns keypt af Guðna í forsölu Lilja í Cosmo selur aðra perlu Kjartans Sjá meira