Saka skrifar undir nýjan langtímasamning við Arsenal Aron Guðmundsson skrifar 9. janúar 2026 15:34 Bukayo Saka er ekki á förum frá Arsenal á næstunni. Vísir/Getty Bukayo Saka, stjörnuleikmaður enska úrvalsdeildarfélagsins Arsenal, hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við félagið til ársins 2031.
Það er Sky Sports sem greinir frá þessu núna síðdegis en gamli samningur Saka við Arsenal átti að renna sitt skeið í júní á næsta ári og voru félög á Englandi sem og víðar í Evrópu að fylgjast grannt með stöðu mála hjá enska landsliðsmanninum. Hann hefur ný krotað undir nýjan samning við Arsenal og hefur Sky Sports eftir heimildarmönnum sínum að það hafi alltaf verið forgangsatriði hjá Saka. Leikmaðurinn leikur algjört lykilhlutverk í liði Arsenal undir stjórn Mikel Arteta. Skytturnar eru sem stendur inni í öllum keppnum, á toppnum í ensku úrvalsdeildinni sem og í Meistaradeild Evrópu. Allt í allt hefur hinn 24 ára gamli Saka, sem gekk til liðs við félagið sjö ára gamall og er uppalinn í akademíu þess, spilað 290 leiki fyrir aðallið Arsenal, skorað 77 mörk og lagt upp sama fjölda marka til viðbótar. Hann er sá leikmaður sem hefur spilað flestar mínútur undir stjórn Arteta síðan að Spánverjinn tók við stjórnartaumunum hjá liðinu árið 2020. Saka er einn fjölmargra leikmanna sem hafa skrifað undir nýjan samning við Arsenal undanfarna mánuði. William Saliba og Gabriel, lykilmenn í hjarta varnarinnar hjá Arsenal, skrifuðu báðir á dögunum undir nýjan samning.
Arsenal FC Enski boltinn Mest lesið Lést í fjöldaárekstri á Nürburgring-brautinni Formúla 1 Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti Enski boltinn Knattspyrnukonurnar sem urðu eftir Fótbolti Orri klikkaði í vítakeppninni en varð samt bikarmeistari Fótbolti „Ég elska það sem ég er að gera“ Enski boltinn „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ Enski boltinn Einnkunnir íslenska liðsins: Flott frammistaða í seinni hálfleik Fótbolti Segja að há lestarfargjöld muni hafa „lamandi áhrif“ á HM Fótbolti „Gríðarlega stolt af þessu afreki og gaman að eiga þetta á ferilskránni“ Sport DeChambeau drullufúll með aðstæður á LIV mótinu Golf Fleiri fréttir „Ef við töpum fyrir Arsenal þá er þetta búið“ „Ég elska það sem ég er að gera“ Man. United með risaskref í átt að Meistaradeildarsæti „Ég vil ekki vinna með döpru fólki eða með neikvæðu fólki“ Stórkostlegt mark Xavi Simons dugði Tottenham næstum því Kirsuberin björguðu sigri eftir að hafa lagt upp jöfnunarmark Miðvörður skoraði úr hjólhestaspyrnu í mikilvægum sigri Leeds Leno bjargaði stigi fyrir Fulham gegn Brentford Aðeins einn miðvörður til taks hjá United fyrir stórleikinn Lampard kom Coventry upp í úrvalsdeildina eftir 25 ára bið Lærisveinar Lampard geta tryggt sér sæti í úrvalsdeildinni Rose sagður taka við af Iraola Villa gæti sent Chelsea í Meistaradeild Evrópu Segir stuðningsmönnum Arsenal að njóta, ekki gagnrýna Fagnað titli á 24 leikja fresti en segir nú bless Eiður Smári með eldræðu um Chelsea: „Ég hefði ekki sofið í fjóra daga“ „Hverjum er ekki sama hvað fólki finnst?“ Manchester United stjarna í bann fyrir að blóta Dómarinn í leik Man. City og Arsenal fæddur í Manchester Iraola yfirgefur Bournemouth Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Hártog og hörmungar heimamanna þegar Leeds fagnaði á Old Trafford Sjáðu miðvörð Man. United fá rautt spjald fyrir hártog Útskýrir hegðun sína: „Meinti ekkert illt með því“ Styttist í að Mainoo skrifi undir nýjan samning Áfall fyrir Tottenham: Fyrirliðinn frá út tímabilið Sjá meira