Vestri opnar knattspyrnuakademíu í Senegal Aron Guðmundsson skrifar 5. janúar 2026 20:17 Frá æfingabúðum sem Vestri, Nordic Waves og Sergine Fall stóðu fyrir undir lok síðasta árs. Mynd: Vestri Knattspyrnudeild Vestra hefur opnað knattspyrnuakademíu í bænum Kebemer í Senegal. Akademían mun heita Vestri/ProKebs og er unnið í samstarfi við Sergine Fall, leikmann Vestra og góðgerðarfélag hans, Nordic Waves.
Þetta kemur fram í færslu knattspyrnudeildar Vestra á samfélagsmiðlum núna í kvöld en stjórn Nordic Waves, góðgerðarfélaginu sem kemur að akademíunni með Vestra og Sergine Fall, er skipuð fólki af Vestfjörðum. Það var í desember á síðasta ári sem að Fall og styrktar- og sjúkraþjálfari Vestra liðsins, Ferran Corominas, héldu æfingabúðir í Senegal. Þar voru æfingahópar mannaðir og þjálfarar ráðnir í nýstofnaða akademíu Vestra í Kebember áður en akademían tekur til starfa núna á nýju ári. Markmiðið með þessu verkefni er að auka tækifæri barna á svæðinu í gegnum íþróttir og menntun. Í knattspyrnuakademíunni verða 60 unglingar í U13, U16 og U19 ára liðum karla og kvenna en einnig sex menntaðir þjálfarar sem og einn yfirþjálfari. „Akademían, ásamt Nordic Waves, er leið til auka menntun og veita hæfileikaríku íþróttafólki brú til tækifæra í Evrópu. Vestri mun geta boðið þeim sem skara fram úr til Vestra á reynslu. Mörg af stærstu liðum Evrópu hafa tengingar til landa í Afríku og hér á norðurlöndum er FC Nordsjælland nærtakasta dæmið með knattspyrnubúðir sínar “Right to Dream Academy” í Gana. Ef vel tekst til er ekkert því til fyrirstöðu að Vestri stækki við sig og opni tækifæri á fleiri stöðum í Afríku.“
Vestri Íslenski boltinn Senegal Mest lesið Týnda treyjan var ekkert týnd heldur í einkasafni Madonnu Fótbolti Icelandair flaug Liverpool til Istanbúl Fótbolti „Sárt að kveðja gegn eigin vilja“ Fótbolti Liverpool og Man. Utd kvarta yfir hryllingi frá Grok Enski boltinn Ómar á fæðingardeild en Snorri valdi sinn sterkasta hóp Handbolti Fimmtán ára fótboltastelpa hneig niður í leik og lést Enski boltinn Sagðir drepa hunda í stórum stíl fyrir HM í fótbolta Fótbolti Eru að borga Messi tíu milljarða á ári Fótbolti Svona var fyrsti fundur Snorra eftir EM Handbolti Skaut fast til baka á Xavi: „Sömu leikmenn eru núna að vinna“ Fótbolti Fleiri fréttir Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Flautaði leikinn af þegar FH-ingar komu ekki út í seinni hálfleik Tillaga um nýtt knattspyrnufélag í Breiðholti lögð fyrir ársþing KSÍ Skagamenn enduðu sigurgöngu Valsmanna í Lengjubikarnum Þórsarar semja við Ganverja til þriggja ára Verðlaunaðir fyrir þættina Lengsta undirbúningstímabil í heimi Sagður á leið í Víkina Tvö mörk í blálokin færðu Víkingum fyrsta titil ársins Bikar undir í gulri viðvörun Óvíst hvenær en Ægir Jarl mun ganga til liðs við Fram Úrslitaleikur Reykjavíkurmóts karla á miðvikudagskvöld Matthías Daði skoraði þrennu gegn Völsungi Þórdís gerði gömlu félögunum grikk og endurkoma hjá Þrótturum Valsarar skoruðu fjögur og Njarðvíkingar enn ósigraðir Stjarnan á toppinn með sigurmarki Samúels Kára Sjá meira