„Við vitum ekkert um nýjan knattspyrnustjóra“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. janúar 2026 20:05 Reece James segir eitthvað við Calum McFarlane í leikslok en McFarlane stýrði liðinu í kvöld. Það mátti greinilega enginn vita hvað James sagði þarna. Getty/Shaun Botterill Chelsea-maðurinn Reece James var í viðtali eftir dramatískt 1-1 jafntefli við Manchester City í ensku úrvalsdeildinni í kvöld en Chelsea jafnaði metin á fjórðu mínútu í uppbótartíma.
Knattspyrnustjórinn Enzo Maresca hætti með liðið tveimur dögum fyrir leik og Calum McFarlane, þjálfari 21 árs liðsins, stýrði liðinu á Ethiad-leikvanginum í kvöld. „Við urðum að sætta okkur við það sem gerðist fyrr í vikunni og setja það til hliðar. Í fyrri hálfleik gerðum við smávægileg mistök en í þeim seinni óx okkur ásmegin. Við vissum að færið myndi koma og þessi gaur [ýtir létt við Enzo Fernandez við hliðina á honum] nýtti það,“ sagði Reece James. „Það er hægt er að hrósa starfsfólkinu sem tók við keflinu. Það er erfitt að spila útileik gegn City í fyrsta leik. Við urðum að aðlagast hratt. Okkur fannst þeir vera of mikið með boltann í fyrri hálfleik svo við þurftum að gera smávægilegar breytingar í hálfleik,“ sagði James. „Við börðumst sem lið í dag og ég er stoltur af strákunum. Það er erfitt þegar knattspyrnustjóri fer en við verðum að berjast hver fyrir annan,“ sagði James. „Við vitum ekkert um nýjan knattspyrnustjóra. Öll vikan okkar snerist um að undirbúa okkur fyrir þennan leik,“ sagði James. „Það sem gerist á bak við tjöldin er ekki undir okkur komið. Við komum hingað. Við einbeittum okkur að leiknum. Við tókum stig á mjög erfiðum útivelli. Við þurfum að jafna okkur. Við sjáum hvað gerist á næstu dögum,“ sagði James.
Enski boltinn Chelsea FC Manchester City Mest lesið Braut kynferðislega á Andy Carroll Enski boltinn Selfyssingar syrgja Sport Gæti þurft að skipta um herbergisfélaga Fótbolti Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Yoro ekki til Íslands Fótbolti Elías lengi frá eftir aðgerð á nýra Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Fleiri fréttir Braut kynferðislega á Andy Carroll Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands Sjá meira