Alls ekki síðasti leikur Semenyo Ágúst Orri Arnarson skrifar 31. desember 2025 11:59 Andoni Iraola segir Antoine Semenyo ekki hafa sungið sitt síðasta fyrir Kirsuberin. AFC Bournemouth/AFC Bournemouth via Getty Images Manchester City virðist vera að ganga frá kaupsamkomulagi við Antoine Semenyo, leikmann Bournemouth, en þjálfarinn Andoni Iraola segir hann ekki hafa spilað sinn síðasta leik fyrir félagið.
Áður hefur verið greint frá því að Bournemouth hafi samþykkt 65 milljóna punda tilboð frá City og félagaskiptaglugginn opnar á morgun, nýársdag. Semenyo er sjálfur sagður vilja ganga frá sínum málum sem fyrst en hann spilaði allar níutíu mínúturnar og átti þátt í þremur mörkum í 2-2 jafntefli gegn Chelsea í gærkvöldi. Vangaveltur voru, og eru enn, um hvort þetta hafi verið síðasti leikur Semenyo fyrir Bournemouth en liðið á næst leiki gegn Arsenal þann 3. janúar og Tottenham þann 7. janúar. Svo heimsækir liðið Newcastle í FA bikarnum þann 10. janúar, sama dag og sagt er að 65 milljóna klásúlan í samningi Semenyo renni út. „Hann er virkilega mikilvægur leikmaður og verður enn þá með okkur“ sagði Iraola, spurður út í næsta leik gegn Arsenal. „Þetta var ekki síðasti leikurinn sem hann spilar fyrir okkur, alls ekki.“ BBC segir Bournemouth vilja halda Semenyo í deildarleikjunum gegn Lundúnaliðunum en muni sleppa honum fyrir bikarleikinn. Heimildir þeirra herma einnig að Liverpool hafi enn áhuga, auk annarra stórliða, en City sé eina liðið sem hafi formlega haft samband við Bournemouth og því fari Semenyo þangað.
Enski boltinn AFC Bournemouth Manchester City Mest lesið Selfyssingar syrgja Sport Hætti við að leggja skóna á hilluna til að fara í þúsund mörkin Fótbolti Dauði varnarmannsins Fótbolti Danir litlir í sér: „Sitja hér tólf súrir menn“ Fótbolti Mætir aftur til að vinna: „Veit núna að ég bý yfir svona geðveiki“ Sport Orðinn nýr maður: „Þetta var orðið mjög þungt“ Fótbolti Landsliðið svitnaði undir vökulu auga vísindamanna Fótbolti Hakimi fyrir dóm vegna nauðgunarásökunar Fótbolti Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur Enski boltinn Þjóðadeildin fer af stað í beinni Sport Fleiri fréttir Vill leyfa bjórdrykkju á fótboltaleikjum aftur George Gillett látinn Skuldir Manchester United enn yfir milljarði punda Porro missir af sex leikjum Ætlaði aldrei til Manchester United Rífleg launahækkun Arteta sem samþykkti nýjan samning Mamma Mbappé vildi að hann færi til Liverpool Fór ófögrum orðum um Íslandsvininn og Manchester United Mikilvægt fyrir Manchester City að Haaland skori ekki öll mörkin Pressa Brighton gerði vörn Arsenal óörugga Ekki séns að City verði meistari með þessari spilamennsku Eiði Smára ekki skemmt Dregur sig úr landsliðinu Vill henda Wirtz út úr liðinu Xhaka til rannsóknar og gefur út yfirlýsingu „Mér finnst það ekki vandamál“ Vissi að dómararnir myndu ekki láta Man. Utd tapa Sjáðu hlægilega sjálfsmarkið, þrennu sem dugði ekki og sigurmark Isaks Neville: Alveg ömurlegt og versta korter sem ég hef séð hjá Man. Utd Slysalegt sjálfsmark en Cunha reddaði stigi Isak tryggði Liverpool sigurinn City vann Sunderland í átta marka leik Rushworth gerði það sama og Schmeichel fyrir 34 árum Sjáðu mörkin sem buguðu meistarana og rautt spjald fyrir leikaraskap Fyrsta mark Coventry skilaði fyrsta sigrinum Barry sendi Everton upp í fimmta sæti og Newcastle vann Hull Skytturnar skotnar í kaf í Brighton Tottenham sökk dýpra og enn án sigurs í fimm leikjum Fjórföld löggæsla fyrir harðasta ríg Englands JJ Gabriel mættur til Barcelona Sjá meira