Leonard aldrei skorað meira en í nótt Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. desember 2025 11:32 Kawhi Leonard og félagar hans í Los Angeles Clippers virðast vera komnir á beinu brautina eftir erfitt gengi framan af tímabili. getty/Katelyn Mulcahy Kawhi Leonard setti persónulegt stigamet í 112-99 sigri Los Angeles Clippers á Detroit Pistons í NBA-deildinni í körfubolta í nótt.
Leonard skoraði 55 stig í leiknum og jafnaði stigametið hjá Clippers. Hann deilir því nú með samherja sínum, James Harden. Leonard hefði þó hæglega getað slegið metið en hann spilaði bara sex mínútur í 4. leikhluta þar sem staða Clippers var góð. Alls spilaði Leonard í 39 mínútur í leiknum í nótt. Hann hitti úr sautján af 26 skotum sínum, þar af fimm af tíu fyrir utan þriggja stiga línuna. Þá nýtti hann sextán af sautján vítaskotum sínum í leiknum. Leonard tók einnig ellefu fráköst, stal boltanum fimm sinnum og varði þrjú skot. A MASTERPIECE FROM KAWHI LEONARD!🖐️ 55 PTS (career-high)🖐️ 11 REB🖐️ 5 STL🖐️ 3 BLK🖐️ 5 3PMThat ties the Clippers franchise record for PTS in a game 🔥 pic.twitter.com/PMacnRiUxW— NBA (@NBA) December 29, 2025 „Hann er loksins að verða heill heilsu og getur loksins spilað nógu margar mínútur til að vera skilvirkur,“ sagði Tyronn Lue, þjálfari Clippers, eftir leikinn. „Þegar hann er heill er hann einn af bestu leikmönnum deildarinnar. Við höfum séð það að undanförnu,“ bætti Lue við en Leonard hefur skorað 39,0 stig að meðaltali í síðustu fjórum leikjum Clippers. Harden skoraði 28 stig og gaf sjö stoðsendingar fyrir Clippers sem hefur unnið fjóra leiki í röð. Liðið er samt sem áður í 13. sæti Vesturdeildarinnar en aðeins Sacramento Kings og New Orleans Pelicans hafa unnið færri leiki vestanmegin í vetur en Clippers. Í þeim tuttugu leikjum sem Leonard hefur spilað á þessu tímabili er hann með 26,2 stig, 6,3 fráköst, 3,5 stoðsendingar og 2,0 stolna bolta að meðaltali. Leonard er á sínu sjötta tímabili með Clippers en hann kom til liðsins eftir að hafa orðið meistari með Toronto Raptors 2019.
NBA Mest lesið Ólýsanleg sorg fyrirliðans Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Kane bjargaði enskum Fótbolti „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Belgía - Senegal | Slagur í Seattle Fótbolti Þjálfarinn kallaði hana „geðsjúkling“ og stundaði sálfræðileiki við hana Enski boltinn Deschamps djúpt snortinn eftir fögnuð stórstjörnunnar Fótbolti Níu ára fór holu í höggi með ömmu og afa Golf Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Haaland hrærður eftir sögulegt afrek: „Mun breyta Noregi til frambúðar“ Fótbolti Fleiri fréttir „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Sjá meira