Yngstur í sögu NBA til að skora fjörutíu stig Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2025 09:34 Miklar væntingar eru gerðar til Coopers Flagg. getty/Alex Goodlett Cooper Flagg, nýliði Dallas Mavericks, skráði sig á spjöld sögunnar í nótt. Hann varð þá yngsti leikmaðurinn í sögu NBA-deildarinnar til að skora fjörutíu stig í leik.
Flagg skoraði 42 stig þegar Dallas laut í lægra haldi fyrir Utah Jazz eftir framlengingu, 140-133, í nótt. COOPER FLAGG SCORES THE MOST POINTS EVER BY AN 18-YEAR-OLD IN NBA HISTORY!!!42 PTS (career high)7 REB6 AST2 BLK pic.twitter.com/oCXzgiKiG7— NBA (@NBA) December 16, 2025 Flagg, sem verður nítján ára á sunnudaginn, er yngsti leikmaður í sögu NBA sem skorar svo mörg stig í leik. Gamla metið átti LeBron James en hann skoraði 37 stig, þá enn átján ára, í desember 2003. „Augljóslega unnum við ekki svo það er erfitt fyrir mig að vera ánægður en þetta er áfangi,“ sagði Flagg eftir leikinn í Salt Lake City í nótt. Auk þess að skora 42 stig gegn Utah tók Flagg sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar í leiknum. Hann er þriðji táningurinn í sögu NBA sem skorar að minnsta kosti fjörutíu stig, tekur að minnsta kosti fimm fráköst og gefur að minnsta kosti fimm stoðsendingar í leik. Hinir eru LeBron og Kevin Durant. Dallas valdi Flagg með fyrsta valrétti í nýliðavalinu í sumar. Hann er með 17,5 stig, 6,3 fráköst og 3,4 stoðsendingar að meðaltali í leik á tímabilinu. Dallas er í 12. sæti Vesturdeildarinnar með tíu sigra og sautján töp.
NBA Mest lesið Hnakkrifust en bjuggu svo til jöfnunarmarkið saman Fótbolti Ótrúleg endurkoma hjá Belgum og Tielemans sýndi stáltaugar Fótbolti Pereira furðu lostinn að hafa verið rekinn frá Forest Enski boltinn Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Körfubolti „Frábært að fá Martin aftur“ Körfubolti Þórsarar taka á móti KR-ingum í Gedda-treyjunni Íslenski boltinn „Þú verður að spyrja hann að því“ Íslenski boltinn Tuchel um hetjuna Kane: „Það sem hann býst við af sjálfum sér“ Fótbolti „Ég er farinn“ Íslenski boltinn Sjokkið breyttist í ævintýri Handbolti Fleiri fréttir „Frábært að fá Martin aftur“ Fleiri augu á mér í þessari deild „Ég talaði við fullt af liðum en leist best á Stjörnuna“ Lárus verður aðstoðarþjálfari Grindavíkur Kawhi Leonard aftur til Kanada Tómas Valur færir sig á milli skóla í sama fylki Grindavík valin á kvikmyndahátíð NBA og keppir við Jordan „Nýi skólinn“ og Norðurlandablæti í Bilbao Ja Morant skipt til Trail Blazers LeBron James yfirgefur Lakers Semja við leikmanninn sem var með 34 stig að meðaltali á móti þeim í fyrra Keflavík sækir liðsstyrk „Alltaf sami tómleiki þegar fjölskyldan er ekki þar“ Ný lið bætast við Í bann fyrir „galið og hættulegt“ brot á Caitlin Clark Kristinn fer til Spánar Var búinn að gefast upp í hálfleik en endirinn eins og Netflix-sería Samherji Martins til Knicks LaMelo Ball til Úlfanna Halldór Garðar í Þór og Emil tekur slaginn Caitlin Clark kýld í hálsinn og þjálfarinn segir dómarana sýna henni vanvirðingu Sendir eftirmanni sínum skilaboð eftir leiki Íslands Martin fékk stóra rós í hnappagatið Okeke farinn frá Álftanesi Abdi á eftir óklárað verk í Grindavík Stólarnir styrkja sig: „Spilað í stórum leikjum á háu stigi“ Risaskipti í NBA: Giannis til Miami Heat Sjöfaldur NBA-meistari mætir til landsins í ágúst Dabbi kóngur tekur við kvennaliði Þórs Argentínskar landsliðskonur á Krókinn og önnur var valin í WNBA Sjá meira