„Þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda“ Stefán Árni Pálsson skrifar 16. desember 2025 11:16 Snorri er ekki bara góður tónlistarmaður, heldur einnig listamaður í eldhúsinu. Hjónin Snorri Helgason og Saga Garðarsdóttir eru að vinna í ýmsum verkefnum saman og ræddi Vala Matt við þau hjónin í Íslandi í dag á Sýn í gær. Þau eru einstaklega samrýmd en á þeirra heimili er það þannig að Saga eldar hreinlega aldrei.
Snorri aftur á móti elskar að elda og eldar alltaf fyrir fjölskylduna. Snorri gaf á dögunum út nýja plötu sem kallast Borgartún og hefur hún slegið í gegn. Hann heldur einnig úti Instagram-síðunni Snossgæti þar sem sjá má Snorra elda girnilega rétti. View this post on Instagram „Ég hef alltaf haft áhuga á mat. Ég hef alltaf heyrt það frá foreldrum mínum, það mátti ekki opna baunadós, þá var ég kominn hlaupandi þegar ég var barn. En það er kannski ekki fyrir kannski svona tíu árum síðan sirka sem ég fór virkilega að taka þetta föstum tökum. Það er aðallega út af því að bara konan mín, Saga, elskar svo mikið mat og þegar maður er með einhverjum sem elskar að borða, þá er svo gaman að elda,“ segir Snorri og heldur áfram. „Ég fór að prófa mig meira og meira áfram og svo þegar það kom Covid varð algjör stökkbreyting. Þá hafði ég meiri tíma. Þá fór þessi hugmynd um Snossgætið að taka á sig mynd,“ segir Snorri sem líkir matargerðinni að vissu leyti við tónlist. Hugmyndir sem liggja í loftinu „Þetta eru bara trix og eitthvað svona sem maður pikkar upp hér og þar og blandar saman, einhver grunnur. Þetta eru hugmyndir sem liggja í loftinu og maður pikkar út það sem maður fílar sjálfur og býr til sína eigin útfærslu af því eins og í tónlist.“ Eins og áður segir kom ný plata Snorra, Borgartún, út á dögunum. „Þessi plata er dálítið svona konseptplata. Það er svona regnhlífarhugtak yfir henni sem er í raun og veru þetta Borgartún fyrirbæri. Hugmyndin kviknaði bara þegar ég var fastur þar í umferðarteppu í Borgartúninu. Og ég var að hugsa að mig langaði til að fjalla um unglingsárin mín og svona uppvaxtarárin. Mig langaði til þess að taka bara samtímann fyrir,“ segir Snorri sem fer nánar út í plötuna í innslaginu hér að ofan.
Ísland í dag Matur Ástin og lífið Mest lesið „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Lífið Gerði leigusamning við krabbameinið Lífið Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Lífið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Lífið Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Lífið Alma stolt af syninum Lífið Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Lífið Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Lífið Drengurinn sem dó Lífið Söngvari 3 Doors Down látinn Lífið Fleiri fréttir Söngvari 3 Doors Down látinn „Ég er pottþétt ekki á leiðinni til Íslands“ Alma stolt af syninum Hitnar í kolunum hjá Heated Rivalry-stjörnum? Gerði leigusamning við krabbameinið Fréttatía vikunnar: Framsókn, Epstein-skjölin og Dagur Sig Tæplega 28 þúsund í mat á mánuði: „Hvar voru þið að svindla?“ Karlmennskan rís úr öskunni Sjö dýrustu eignirnar sem seldust árið 2025 Alan Carr á Íslandi „Ungir drengir eru búnir að láta segja sér að þeir séu eitraðir“ Gummi Emil á leið í fæðubótarefnin Fannar og Vala keyptu fyrir 170 milljónir í Kjalarlandi Hefur verið 73 kíló í 55 ár en bætti aðeins á sig þegar bjórinn var leyfður Viðar Örn hefur störf á Sólheimum Geoff og Ásta Margrét nýtt par Prinsinn og prinsessan ætla að flytja heim á næsta ári Vill 700 milljónir fyrir höllina Drengurinn sem dó Nakinn á kóræfingu Laufey fékk sæta kveðju frá yngsta Grammy-verðlaunahafa sögunnar „Skýið er bleikt og við erum sannarlega enn þá á því skýi og í sjokki“ Síðasti leynigesturinn opinberaður „Hvernig ég er að gera þetta núna er ekki hægt til lengri tíma“ Tók Indriða í pontu og uppskar hláturskast í þingsal X-ið bætir við sig Bolla Vaskir Valsmenn hressir á Hlíðarenda „Þetta er bara fjárhagslegt ofbeldi“ „Ekki er þetta uppáhaldslagið þitt?“ Forsetinn hótar lögsókn: „Vertu viðbúinn Noah“ Sjá meira