Gunnar Smári látinn heyra það fyrir færslu um Davíð á Sorpu Magnús Jochum Pálsson skrifar 8. desember 2025 13:29 Gunnar Smári átti sennilega ekki von á fúkyrðaflauminum sem myndi fylgja þegar hann birti þessa mynd á Facebook-síðu sinni. Gunnar Smári Egilsson, ritstjóri Samstöðvarinnar, kíkti í Sorpu um helgina og rakst þar á Davíð Oddsson á gamalli innrammaðri forsíðu Morgunblaðsins. Gunnar deildi mynd af rammanum á Fésbókinni og fékk mjög misjafnar viðtökur við gjörningnum.
Gunnar birti færsluna síðdegis á laugardag með mynd af rammanum við gáminn fyrir ómálað timbur og skrifaði: „Sá sem var að henda þessu fann ekki viðeigandi gám. Það vantar gám hjá Sorpu fyrir svona, mætti kallast: Öskuhaugur sögunnar.“ Um er ræða forsíðu átta síðna aukablaðs sem fylgdi með Morgunblaðinu fimmtudaginn 13. október 2005 í tilefni af því að Davíð Oddsson sagði skilið við stjórnmálinn og var skipaður seðlabankastjóri. Freysteinn Jóhannsson, þáverandi fréttastjóri Morgunblaðsins, tók þar langt viðtal við Davíð og ræddi við hann um ævi og störf hans. Færsla Gunnars vakti töluverð viðbrögð, tæplega fjögur hundruð manns brugðust við henni og hefur henni verið deilt nokkrum sinnum. Þá hafa tugir manna skrifað ummæli við færsluna, þar af óvenju margir til að bölva færsluhöfundinum. Ómálað timbur? Varla. „Þú ættir nú heima á þeim öskuhaugum,“ skrifaði Rósmundur Magnússon. „GSE er yfirburðamaður á öllum sviðum og þarf að takast á við öfund manna minni sanda, ég þekki hann ekkert en báðir tölum við frönsku, ég B2,“ svaraði Pétur Kristjánsson og tók til varna fyrir Smára. „Gunnar Smári færi í flokkinn spilliefni 🤪,“ bætti Hjörleifur Guðmunds við. Nokkrir létu duga að gantast með myndina. „Kannski Góði taki þetta frá fyrir Hannes,“ sagði einn. „Kannski í ... Óendurvinnanlegt?“ sagði annar. Loks sagði sá þriðji: „En þá þyrfti að henda öllu prentuðu rugli HHG í sama gám? Eða er gamlársbrenna lausnin?“ Engin virðing fyrir neinu, veggskraut ársins 2007 og duddusog Stuðningsmenn Davíðs tóku færsluna greinilega nærri sér og fannst þeir þurfa að láta sósíalistaforingjann fyrrverandi heyra það. Og það heiftúðlega. „Ég hef aldrei svarað neinu frá þér Gunnar Smári sem ég hef séð en þetta tel ég vera að kasta steini úr glerhúsi. Þessi orð þín lýsa miklu betur hvernig þínar hugsanir eru innréttaðar. Engin virðing fyrir neinu. Ekki neitt,“ skrifaði sameiginlegur aðgangur Rúnars og Guðlaugar. Gunnar Smári er óhræddur við að svara fyrir sig. „Tíminn mun leiða í ljós hversu mikil gæfa það var fyrir Íslendinga að fá Davíð Oddsson sem borgarstjóra og síðar sem forsætisráðherra. Hættu þessu skítkasti Gunnar Smári þú sem hefur ekki afrekað nokkurn skapaðan hlut,“ skrifaði Gunnar Mar Gunnarsson. „Æ, greyið mitt. Prufaðu snuð, sumir jafna sig fljótt með því að sjúga eitthvað mjúkt. Þú getur líka notað þumalinn,“ svaraði Gunnar kokhraustur. Ragnar Ingi Ragnarsson lét nægja að spyrja Gunnar hvort þetta væri myndin sem hefði hangið upp á vegg hans árið 2007. „Þú misstir af parti af Íslandssögunni. Davíð hataði Fréttablaðið sem ég ritstýrði, beitti sér gegn því og mér af mikilli heift. Og Davíð á nóg af heift,“ svaraði Gunnar.
Sorpa Sjálfstæðisflokkurinn Fjölmiðlar Samfélagsmiðlar Mest lesið Reyndist sannspár um koss dauðans Lífið Michael nær ekki að fela fílinn í herberginu Gagnrýni Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga Lífið „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Lífið Birna María og Egill eignuðust dreng Lífið Stórmynd Sádanna stefnir í stærsta flopp sögunnar Bíó og sjónvarp Bestu kvikmyndir 21. aldarinnar Bíó og sjónvarp Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Lífið Þetta hefur gefið mér nýtt líf Lífið samstarf Fleiri fréttir Oddvitaáskorunin: Ice ekki lengur eins viðeigandi viðurnefni vestanhafs Birna María og Egill eignuðust dreng Oddvitaáskorunin: Að stöðva Borgarlínuna efst á lista Reyndist sannspár um koss dauðans Britney ákærð fyrir ölvunarakstur „Nú erum við komin í alvöru Drakúlaleik“ Bubbi komst ekki í jarðarför Bjögga „Ég stöðvaði þessar samfarir“ Oddvitaáskorunin: „Sérvitur sveitavargur“ Stór brjóst eru stór Hvað veistu um… Stellu í orlofi? Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Sjá meira