„Pavarotti á ís“ vekur reiði ekkju stórsöngvarans Hólmfríður Gísladóttir skrifar 2. desember 2025 07:43 Ítalskir miðlar hafa kallað uppákomuna „Pavarotti á ís“. Getty/Gianni Ferrari Borgarstjóri Pesaro á Ítalíu hefur beðið fjölskyldu stórsöngvarans Luciano Pavarotti afsökunar, eftir að skautasvell var byggt í kringum styttu af tenórnum.
Styttan stendur á torgi þar sem skautasvelli hefur nú verið reist í tilefni jólanna. Svellið nær styttunni upp að hnjám og verður að segjast eins og er að sýnin er dálítið hjákátleg. Borgarstjórinn, Andrea Biancani, gerði svo illt verra þegar hann vakti athygli á svellinu á samfélagsmiðlum og hvatti skautara til að gefa Pavarotti fimmu. Nicoletta Mantovani, ekkja Pavarotti, lýsti í kjölfarið reiði með ákvörðun bæjaryfirvalda, sem hún sagði hafa ákveðið að gera lítið úr eiginmanni sínum heitnum. In Pesaro, the statue dedicated to opera singer Luciano Pavarotti ended up trapped in the ice skating rink.Not content with this, the mayor invited citizens to "high-five" the statue while skating, sparking protests from Pavarotti's widow.Nov 26, 2025 pic.twitter.com/6j4VjQ5bqU— Crazy Ass Moments in Italian Politics (@CrazyItalianPol) November 26, 2025 „Ég gerði ekki ráð fyrir að bærinn myndi leyfa þessa meðferð á minningu og ímynd mannsins sem hóf Ítalíu til virðingar út um allan heim,“ sagði Mantovani í samtali við Il Resto del Carlino. Styttan af Pavarotti var afhjúpuð í apríl í fyrra, að Mantovani og dóttur þeirra hjóna viðstöddum. Fjölskyldan átti villu í bænum og varði nokkrum tíma þar. Að sögn Biancani verður skautasvellið ekki tekið niður úr þessu en hann hefur heitið því að mistökin muni ekki endurtaka sig. Pavarotti lést árið 2007 en hann hafði verið greindur með krabbamein í brisi. Hann var 71 árs.
Ítalía Styttur og útilistaverk Mest lesið Rífur niður hús sem hann gekk framhjá alla skólagönguna Innlent Ný greiningaraðferð á endómetríósu í sjónmáli Innlent „Þetta eru alltof miklar hækkanir“ Innlent Bjóða upp á tjaldsvæði inni Innlent „Höfum ekki unnið nóg“ Erlent Vaxandi ótti við langvarandi átök Erlent Stóraukin þátttaka kvenna í skimun fyrir krabbameini Innlent Ekki í forgangi hjá Isavia að smíða bílastæðahús Innlent Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Erlent Fréttinni skylt að birta andsvar Sigurbjargar Innlent Fleiri fréttir „Höfum ekki unnið nóg“ Vaxandi ótti við langvarandi átök Skutu niður eldflaugar í landhelgi Tyrklands Rannsaka heimagerða sprengju sem hryðjuverk Felldu sex í árás á enn einn bátinn Eldhaf í Glasgow Kveikt í púðurtunnu í Mið-Austurlöndum Segir sig og Netanyahu munu ákveða hvenær þeir hætta Sonur Khamenei nýr leiðtogi Írans Ræddust við í síma í kjölfar ummæla Trump um Breta Segir af sér vegna samnings Pentagon við gervigreindarfyrirtæki Til skoðunar hvort um hryðjuverk sé að ræða Sprenging við bandaríska sendiráðið í Osló Hóta öllum mögulegum arftökum Khamenei „Þess í stað eru þeir ræflar svæðisins“ Leiðtogar kalla eftir breytingum á erfðaröðinni Soham-morðinginn látinn Segir kröfu Bandaríkjanna um skilyrðislausa uppgjöf Íran draum Segir Kúbu brátt munu falla Rússar hjálpa Írönum að finna skotmörk Segir ekkert annað en uppgjöf Írana koma til greina Birtu viðtölin um Trump sem vantaði í Epstein-skjölin Hættir við framboð sitt í kjölfar játningar um framhjáhald Telja líklegt að þeir hafi drepið írönsku skólastúlkurnar Skurðlæknir í Lundúnum fjarlægði blöðruhálskirtil á Gíbraltar Grænmetis„borgarar“ í lagi en ekki grænmetis„beikon“ Bandaríkjamenn heimila Indverjum að kaupa olíu frá Rússlandi Bandaríkin og Ísrael boða harðari árásir á næstu dögum Handleggsbrotinn eftir átök við þingmann Noem rekin Sjá meira