Kolbeinn enn ósigraður eftir að hafa rotað Martinez Aron Guðmundsson skrifar 30. nóvember 2025 11:00 Martinez átti ekki roð í Kolbein í hnefaleikahringnum í gær. Samsett mynd Kolbeinn Kristinsson, atvinnumaður í hnefaleikum, er enn ósigraður á sínum atvinnumannaferli eftir að hafa unnið sinn nítjánda bardaga í gærkvöldi með rothöggi.
Kolbeinn mætti Venezúelabúanum Pedro Martinez í hnefaleikahringnum í Finnlandi í gærkvöldi og skemmst er frá því að segja að Kolbeinn komst nokkuð klakklaust frá þeim bardaga. Bardaganum lauk í annarri lotu þegar að Kolbeinn rotaði Martinez og tryggði sér þar með nítjanda sigurbardagann á atvinnumannaferlinum. Kolbeinn hefur enn ekki tapað bardaga. View this post on Instagram A post shared by Kolbeinn Kristinsson (@theicebearkristinsson) Líkt og fram kom í viðtali við Kolbein hér á Vísi í aðdraganda bardagans sagði hann frá því að það hefði reynst erfitt fyrir sig að fá bardaga en menn virtust tregir til þess að mæta honum í hringnum. Ætli góður árangur hans þar spili ekki mikið inn í. Um var að ræða annan bardaga Kolbeins á árinu en í þeim fyrsta tryggði hann sér WBF heimsmeistarabeltið með sigri gegn Mike Lehnis. Ætla má að Kolbeinn muni vilja mæta aftur í hringinn sem fyrst eftir að hafa sloppið óskaddaður frá viðureign sinni gegn Martinez en hann hefur löngum verið að bíða eftir stóra tækifærinu á stóru bardagakvöldi. Kolbeinn er sem stendur 68. sæti á heimslista þungavigtarkappa en þar eru 1.568 þungavigtarkappar skráðir.
Box Mest lesið Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina Enski boltinn Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka Fótbolti Eiður Smári þjálfar KA Íslenski boltinn „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fótbolti Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Enski boltinn Landsliðskona í Val Handbolti „Takk fyrir mig körfubolti“ Körfubolti Tijjani Reijnders farinn Enski boltinn Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Fótbolti Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Fótbolti Fleiri fréttir Víkingur berst fyrir sæti í Sambandsdeildinni í beinni Tijjani Reijnders farinn Kane gerir lítið úr mögulegri endurkomu í ensku úrvalsdeildina „Takk fyrir mig körfubolti“ Atlético Madrid fagnaði sigri á nýliðum Málaga Landsliðskona í Val Einn af varaforsetum FIFA dregur stuðning sinn við Infantino til baka „Það koma klárlega dagar sem ég er hrædd“ Fanney í markinu fyrstu tvo leikina og sex stig komin í hús Sjáðu upphitunarþáttinn fyrir enska boltann Eiður Smári þjálfar KA Gæti misst af byrjun tímabilsins eftir að stuðningsmaður tæklaði hann Pablo Bertone aftur í Val Lík fannst á leikvangi Charlton Monaco riftir samning við Pogba Keflavík heldur áfram að styrkja sig Mögnuð þrenna Köru í Keflavík Daníel Guðjohnsen úr frystinum til Þýskalands Breki nýtir sér ráð Viktors og er klár í harðan slag í Portúgal Myndi taka kúlu fyrir Infantino Algjört risastökk Ólivers á heimslistanum Baleba færist nær United Mun Guðmundur reisa Holland við? Jóhann áfram í limbói en krakkarnir í skóla á Spáni Arsenal nálgast kaup á Konsa Byrjaðir að undirbúa lífið án Martínez: Keyptu japanska landsliðsmarkvörðinn Mun ekki keyra fyrir Red Bull um helgina Í bann fyrir neyslu kókaíns: „Ekkert af þessu afsakar það sem ég gerði“ „Fann í líkama, hjarta og sál að nú væri komið gott“ Allt klárt hjá Aroni eftir erfiðustu ákvörðun ferilsins Sjá meira