Moyes kastaði kveðju á vini sína á Íslandi eftir viðtal við Hjörvar Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 25. nóvember 2025 08:32 David Moyes og fjölskylda hans hafa sterk tengsl við Ísland. sýn sport David Moyes, knattspyrnustjóri Everton, var léttur í lund þegar Hjörvar Hafliðason ræddi við hann eftir sigurinn á Manchester United í gær.
Þrátt fyrir að vera manni færri í 77 mínútur vann Everton United, 0-1, þökk sé marki Kiernans Dewsbury-Hall í fyrri hálfleik. Þetta var fyrsti sigur Moyes sem stjóri gestaliðs á Old Trafford. „Það hefur verið mjög erfitt sem stjóri gestaliðsins að koma og vinna United á útivelli í gegnum árin svo þetta var óvænt í dag, sérstaklega eftir að við urðum manni færri, en við verðskulduðum þetta,“ sagði Moyes við Hjörvar. „Leikmennirnir sýndu mikla þrautseigju og samstöðu og við fengum líka stórkostlegan stuðning hérna.“ Hugsaði um að taka framherjann út af Moyes gerði ekki skiptingu eftir að Gueye fékk rauða spjaldið en nokkru áður hafði Séamus Coleman meiðst og Jake O'Brien kom inn á í hans stað. „Við hugsuðum um að breyta og möguleikinn var kannski að taka framherjann út af og setja Iliman [Ndiaye] jafnvel fram og þétta liðið en Thierno Barry gerði mjög vel og leiddi framlínuna vel,“ sagði Moyes. Kiernan Dewsbury-Hall fagnar marki sínu gegn Manchester United ásamt Iliman Ndiaye.getty/Alex Livesey „Það var áfall að missa Séamus því þetta var fyrsti leikurinn hans. Hann meiddist á læri og því þurftum við að breyta. Ég er vonsvikinn fyrir hans hönd því hann er svo góður strákur.“ Vill koma Everton aftur í Evrópukeppni Hjörvar spurði Moyes hvort Everton gæti endað meðal fimm efstu liða ensku úrvalsdeildarinnar og krækt sér í Meistaradeildarsæti. „Ef þú hefðir sagt það við mig í síðustu viku hefði ég sennilega sagt nei út af liðunum sem eru fyrir ofan okkur en ég ætla að vera jákvæður og vil koma Everton aftur í Evrópukeppni. Ég veit ekki hvort við getum það eða fáum nógu mörg stig. En ég gerði það hjá West Ham. Fyrst björguðum við okkur frá falli og tímabilið þar á eftir komust við í Evrópukeppni,“ sagði Moyes. Moyes stýrði Everton á árunum 2002-13 og tók svo aftur við liðinu í janúar á þessu ári.getty/James Gill „Það yrði frábært fyrir stuðningsmennina að komast aftur í Evrópukeppni. Ég vil gera það. En það er mjög erfitt að spila á fimmtudegi og sunnudegi. Við höfum möguleika á meiri endurheimt líkt og Manchester United. Þeir eru heldur ekki í Evrópukeppni.“ Verður að lifa með sögunni og væntingunum Að lokum spurði Hjörvar Moyes hvort hann hefði samúð með Ruben Amorim, knattspyrnustjóra United. Moyes hefur auðvitað reynslu af því að stýra Rauðu djöflunum en hann tók sem kunnugt er við af Sir Alex Ferguson fyrir tólf árum en entist ekki lengi í starfi á Old Trafford. „Þegar þú kemur til Manchester United verðurðu að lifa með sögunni og væntingunum. Ég þurfti að gera það. Þetta er sérstakt og frábært félag, kröfurnar eru miklar sem og stuðningurinn og allt þetta hangir á þér.“ Að lokum kastaði Moyes kveðju á alla vini sína á Íslandi en fjölskylda hans hefur sterk tengsl við landið. Horfa má á viðtalið við Moyes í spilaranum hér fyrir ofan.
Enski boltinn Tengdar fréttir Sjáðu æðiskast Gueye sem fékk rautt fyrir að slá liðsfélaga Það er afar fátítt að leikmenn séu reknir af velli fyrir brot á liðsfélaga en það gerðist í leik Manchester United og Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 24. nóvember 2025 20:36 United afþakkaði glórulausa gjöf Gueye Þrátt fyrir að hafa misst Idrissa Gana Gueye af velli með rautt spjald, fyrir að slá liðsfélaga sinn, náðu tíu baráttuglaðir Everton-menn að landa frábærum 1-0 sigri gegn Manchester United á Old Trafford í kvöld, þegar tólftu umferð ensku úrvalsdeildarinnar lauk. 24. nóvember 2025 21:53 Mest lesið Lakers selt fyrir metupphæð Körfubolti Keyptu kynlífsþjónustu fyrir dómara með korti sambandsins Fótbolti Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Enski boltinn Æfði með tveggja feta snák í hjálminum Sport Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Enski boltinn Staðfestir brottför Gunnars: „Einn besti varnarmaður frá upphafi“ Íslenski boltinn Messi opnar sig um föðurmissinn: „Veit ekki hvernig ég á að halda áfram“ Fótbolti „Viss um að þetta sé rétta skrefið fyrir feril minn“ Fótbolti Ronaldo gifti sig í fámenni Fótbolti Gunnlaugur Árni setti heilsuna í fyrsta sæti Golf Fleiri fréttir Arsenal og Man. United unnu bæði í vító Chelsea heldur áfram að bæta við sig „gömlum“ leikmönnum Fenerbahce staðfestir Lukaku sem gæti haft áhrif á Jesus hjá Arsenal Tielemans segir að Manchester United sé stærra félag en Aston Villa Ofurtölva Sky spáir því að Arsenal verji titilinn og Liverpool endi ofar en United Óvenjuleg leið á toppinn Stuðningsmenn Liverpool vilja útskýringu á kaupum Jeff Bezos Notar ekki þrjá af bestu mönnunum sínum í úrslitaleiknum Inter Milan gerir tilboð í Spence Fær ekki leyfi til að spila fyrir Liverpool Mourinho hringdi í Ferguson og grét „Mér líður frábærlega“ Iraola segir leikmenn Liverpool ekki hafa orku í níutíu mínútur Eigandi Forest í mál við Crystal Palace vegna byssuborða Liverpool staðfestir samning við Barcelona um lánið á Araujo Højbjerg hafnaði Newcastle Everton og Crystal Palace skiptast á leikmönnum Mun Bezos verða eigandi Liverpool? Liverpool og Barcola náð samkomulagi Óvenjulegur vinskapur Haaland vekur athygli Mourinho samþykkti að taka við Manchester United eftir Ferguson Englandsmeistararnir ekki sannfærandi Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Aston Villa hyggst fylla í götin Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Andri Lucas aftur á skotskónum eftir meiðsli Grípa í taumana eftir banaslys Bruno orðinn leikmaður Arsenal: „Ég verð ykkar stríðsmaður“ Táningur Manchester United fær 24 karata gullspjald Sjá meira
Sjáðu æðiskast Gueye sem fékk rautt fyrir að slá liðsfélaga Það er afar fátítt að leikmenn séu reknir af velli fyrir brot á liðsfélaga en það gerðist í leik Manchester United og Everton í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld. 24. nóvember 2025 20:36
United afþakkaði glórulausa gjöf Gueye Þrátt fyrir að hafa misst Idrissa Gana Gueye af velli með rautt spjald, fyrir að slá liðsfélaga sinn, náðu tíu baráttuglaðir Everton-menn að landa frábærum 1-0 sigri gegn Manchester United á Old Trafford í kvöld, þegar tólftu umferð ensku úrvalsdeildarinnar lauk. 24. nóvember 2025 21:53