ÍBV með öruggan sigur í Garðabænum Árni Jóhannsson skrifar 15. nóvember 2025 18:32 ÍBV er ásamt Val og ÍR á toppi Olís deildarinnar. ÍBV jafnaði við ÍR og Val á toppi Olís deildar kvenna í handbolta í dag en leikið var í Garðabæ. Leikurinn var lokaleikur 9. umferðar deildarinnar og endaði 26-36. Stjarnan situr sem fastast á botni deildarinnar.
Eyjakonur náðu forskotinu strax í upphafi leiks og var staðan orðin 0-3 eftir þrjár mínútur. Stjörnukonur ætluðu hinsvegar að selja sig dýrt og náðu að jafna metin í 7-7 eftir 13 mínútna leik og var hann í jafnvægi næstu mínútur en heimakonur komust yfir í fyrsta sinn 10-9 sex mínútum síðar. Þá sögðu Eyjakonur hingað og ekki lengra og hlóðu forskot sem varð sex mörk áður en fyrri hálfleik lauk. Staðan 12-18 í hálfleik og ÍBV leit ekki um öxl. Seinni hálfleikurinn var í raun og veru bara formsatriði þar sem ÍBV jók forskotið jafnt og þétt. Þegar flautan gall við 60 mínútna markið var staðan 26-36 og öruggur sigur staðreynd. Alexandra Viktorsdóttir skoraði átta mörk fyrir ÍBV í níu skotum og Amalia Froland lokaði rammanum með 17 varin skot. Hjá Stjörnunni var Vigdís Arna Hjartardóttir markahæst, einnig með átta mörk í níu skotum, og Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir varði 12 skot. ÍBV er í fyrsta til þriðja sæti með Val og ÍR en öll liðin eru með 14 stig eftir níu umferðir. Stjarnan á enn eftir að vinna leik í vetur og eru á botni deildarinnar með eitt stig.
ÍBV Stjarnan Olís-deild kvenna Mest lesið Ronaldo í tárum eftir leik: „Við unnum fyrir Diogo“ Fótbolti Markvörður Þórs skoraði ótrúlegt mark gegn KR Íslenski boltinn Átta leikmenn Túnis féllu á lyfjaprófi Fótbolti Dómari útskýrir af hverju Messi slapp en Balogun fékk rautt Fótbolti Átti Amin að sjá rautt? Íslenski boltinn Bandarísk borg setur á útgöngubann eftir leik Grænhöfðaeyja Fótbolti Tæknin kom Portúgal til bjargar og endaði drauma Króata Fótbolti Búinn að hlaupa allar götur í Reykjavík Sport „Ég er Grindvíkingur en vill bara svo til að ég fór í Keflavík“ Körfubolti Stórstjörnur hætta með landsliðinu eftir að hafa dottið út af HM Fótbolti Fleiri fréttir Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Sjá meira