„Menn beita öllum brögðum“ Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. nóvember 2025 12:32 Arsenal-maðurinn Myles Lewis-Skelly tekur innkast í leik með liðinu. Getty/Charlotte Wilson Arsenal er á toppi ensku úrvalsdeildarinnar en mikið hefur verið rætt og skrifað um föstu leikatriðin hjá liðinu á þessu tímabili. Sunderland notaði sérstaka leið til að hafa áhrif á innköst Arsenal í jafntefli liðanna um síðustu helgi.
Messan ræddi þetta útspil Sunderland en nýliðarnir náðu þarna í stig á móti besta liði deildarinnar. „Erum við að fara að sjá lið gera þetta eins og Sunderland. Færa auglýsingaskiltin til að trufla löngu innköstin. Erum við að fara að sjá fleiri lið gera þetta,“ spurði Kjartan Atli Kjartansson, umsjónarmaður Messunnar. „Arsenal er ekkert sterkasta liðið í deildinni í þessu en eru bara virkilega öflugir í öllum föstum leikatriðum. Jú, jú, menn beita öllum brögðum en ég hefði haldið að þetta myndi bitna meira á Sunderland-liðinu heldur en Arsenal,“ sagði Albert Brynjar Ingason, sérfræðingur Messunnar. „Þetta er aftur aðbúnaður í leik eins og að vökva völl og svo framvegis. Ég hef haldið að það væru einhverjar reglur um þetta,“ sagði Bjarni Guðjónsson, sérfræðingur Messunnar. „Ég man ekki eftir því þegar Tony Pulis kom og tók við Stoke í fyrsta skipti. Það fyrsta sem hann gerði var að segja inn með línurnar. Völlurinn varð því eins grannur og hægt væri að hafa, ekki eins breiður. Hann tók hann og minnkaði hann um tvo eða þrjá metra hvoru megin. Þá sáust gömlu línurnar en það var ekki bara fyrir einn leik. Það var bara Pulis-tíminn. Þröngt,“ sagði Bjarni. Það má finna umfjöllun þeirra um þetta hér fyrir neðan. Klippa: Sunnudagsmessan: Arsenal og innköst
Enski boltinn Mest lesið Gerir grín að klæðaburði liðsfélaga síns Körfubolti Samþykkja hvern Rússann á fætur öðrum inn á Ólympíuleikana Sport Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Enski boltinn Hafa áhyggjur af notkun gríma sem líkja eftir þjálfun í þunnu lofti Sport Stjórnin leyst frá störfum eftir að tólf ára drengur drukknaði Sport Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum Enski boltinn „Við eigum heima í Evrópu“ Enski boltinn Sú besta í heimi ætlar sér að koma til baka löngu fyrir Íslandsleikinn Fótbolti Má mæta í bláum gallabuxum: „Skáksambandið gerir bara það sem Magnus biður um“ Sport Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir Amorim endaði viðtalið á gamansömum nótum „Við eigum heima í Evrópu“ Daninn skaut Man. United upp fyrir Liverpool Amorim segir strákinn í frystinum vera framtíðin hjá Man. United Martinez með fyrirliðabandið og báðir Fletcher-bræðurnir á bekknum Havertz gæti snúið aftur á næstu dögum Alfons og Willum sáu tvö rauð spjöld fara á loft Synir Diogo Jota leiða leikmenn út á Anfield Cunha vill skemmta og Howe treystir leikmönnum United horfir til Þýskalands eftir höfnun Semenyo Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg Sjá meira