Menningarvaktin: Ráðning óperustjóra jafn spennandi og þjálfara KR Boði Logason skrifar 16. október 2025 15:18 Símon Birgisson stýrir Menningarvaktinni sem birtist annan hvern fimmtudag í vetur. Vísir/Anton Brink Menningarvaktin, nýtt menningarhlaðvarp, hefur hafið göngu sína á Vísi. Símon Birgisson, leikhúsgagnrýnandi, fær þar til sín góða gesti fyrir heiðarlegar, frjálsar og öðruvísi umræður um það sem er efst á baugi í menningunni.
Blaðamaður heyrði hljóðið í Símoni Birgissyni, sem kennir grunnskólabörnum þegar hann er ekki að rýna í nýjustu leikverkin, til að forvitnast út í nýútkomna Menningarvaktina s. Hver er pælingin með Menningarvaktinni? „Hugmyndin kviknaði eiginlega í sumar. Ég hlusta sjálfur mikið á íþróttahlaðvörp og þar er maður alltaf að heyra menn greina og spjalla um síðustu leiki eða umferð í boltanum. Það er í raun ótrúlegt hversu mörg hlaðvörp eru í gangi um sömu fótboltaleikina. Hins vegar er ekki mikið í gangi í menningunni,“ segir Símon. „Jú, þú getur lesið viðtöl við leikstjóra eða plögg um sýningar í fjölmiðlunum en mig langaði að búa til hlaðvarp sem þú vilt hlusta á eftir að hafa séð nýjustu sýninguna í Þjóðleikhúsinu, eða nýju íslensku myndina í bíó.“ Ráðning óperustjóra jafn spennandi og þjálfara KR Hann hafi líka þyrst í vettvang fyrir öðruvísi menningarumræðu, það sem stjórnendur íþróttahlaðvarpa myndu kannski kalla „bransatal“. „Mér finnst ekkert minna spennandi að velta því fyrir mér hver verður næsti óperustjóri heldur en hver verður næsti þjálfari KR,“ segir Símon. Símon fær til sín gesti í hverri viku í vetur til að ræða um menninguna. „Við erum svo með geggjaða penna á Vísi eins og Jónas Sen sem hefur heldur betur hrist upp í umræðunni og Magnús Jochum Pálsson kvikmyndarýni sem þorði meira að segja að gagnrýna þáttaröð eftir Baltasar Kormák. Það er meira pönk og frjálsræði á Vísi en öðrum miðlum sem ég hef unnið hjá og ég vona að það skili sér í Menningarvaktinni. Hvað aðskilur þáttinn frá þeim fjölda menningarþátta sem er á Rúv? „Ég var nú sjálfur á Rúv á sínum tíma í menningarþættinum Djöflaeyjan. Það var metnaðarfullur þáttur en sem dæmi fengum við ekki nema tíu til tólf mínútur í gagnrýnina um leiksýningar. Það er svolítið vandinn á stofnun eins og Rúv – þú þarft að þjónusta alla jafnt og þá nærðu aldrei að gera eitthvað eitt súper vel,“ segir hann. „Á Vísi erum við að skrifa gagnrýni fyrir fólkið en ekki fræðimenn. Það er súper dýrt að fara í leikhús í dag – ég borgaði um 60 þúsund fyrir að fara með alla fjölskylduna mína á Ladda á síðasta ári. Þannig að ég lít á mína gagnrýni sem þjónustu við lesendur. Sumir fara bara í leikhús einu sinni á ári – aðrir oftar en maður verður að vera heiðarlegur, nota stjörnuskalann því annars tekur enginn mark á þessu.“ „Má ekki grínast lengur?“ Umræðan megi heldur ekki verða of fræðileg að mati Símonar. „Það er annað vandamál með fínu menningarþættina. Prófessorar og doktorar í listum eru ekki alltaf skemmtilegustu viðmælendurnir þó þeir hafi fína titla,“ segir hann. Valur Grettisson og Jónas Sen í stúdíóinu. Nú er fyrsti þáttur nýkominn út, hvað var rætt um þar? „Heyrðu, ég fékk Val Grettisson, blaðamann á Heimildinni og Jónas Sen til mín í settið. Ég og Valur höfum þekkst lengi, unnið saman á ýmsum fjölmiðlum og hann hefur skemmtilegt sjónarhorn á leikhúsið. Valur verður vonandi fastur gestur á Menningarvaktinni í vetur,“ segir Símon um gesti sína. „Við fórum yfir hvað hefur slegið í gegn í vetur í leikhúsunum og hvað hefur floppað. Svona stöðutjekk eftir fyrsta leikhluta þar sem Moulin Rouge stendur kannski svolítið uppi sem sigurvegari.“ „Jónas fór svo í bíó og við ræðum um stórmyndina Eldarnir sem er núna í bíó. Margt áhugavert í því samtali, veltum því til dæmis upp hvort myndin sé hreinlega vitlaust markaðssett? Og svo var aðeins komið inn á líf tónlistargagnrýnandans, móðgaða listamenn og sárar söngkonur. Yfirskrift samtalsins gæti í raun verið – má ekki grínast lengur? Við endum svo þáttinn á spjalli um stóra Laxness málið og ráðningu óperustjóra sem gæti orðið umdeild,“ segir hann að lokum.
Menning Leikhús Bíó og sjónvarp Kvikmyndagerð á Íslandi Tónlist Tónleikar á Íslandi Menningarvaktin Þjóðaróperan Mest lesið Brúðurin hljóp grátandi út áður en Victoria dansaði við Brooklyn Lífið Aron Can og Erna selja en elska eldhúsbúrið Lífið Tinna Hrafns og Sveinn selja á Laugarásveginum Lífið Kristinn Svavarsson er látinn Tónlist „Mig langar bara að vera upprétt og sterk“ Lífið Löggan byrjar á TikTok með því að gasa Egil og Rikka Lífið Atvinnulaus aumingi trompar dauðakölt Gagnrýni Rifjar upp misgóðar minningar í sölutilkynningunni Lífið Auglýsing Blush sé fyrir neðan allar hellur Lífið Vinsældir þessarar siðspilltu moldvörpu eru þér að kenna Lífið Fleiri fréttir Sígildar myndir og heimsfræg leikkona á franskri kvikmyndahátíð Viðbjóðurinn fær sviðsljósið: „Eilíft vakir minning þín, slef, prump, piss, og þvag og slím“ Blint stefnumót heppnaðist vel Halla T meðal sofandi risa Líkamsumhirða sem þróast í þráhyggju Bestu og verstu leiksýningar síðasta leikárs Trölli stelur jólunum í Borgarleikhúsinu Baltasar Samper látinn Nýr óperustjóri: Lengri samningar og stöðugleiki nýlunda í íslensku óperulífi Vilhjálmur Bergsson er látinn Ólafur Jóhann er konungur bóksölunnar 2025 Enginn formaður Sjalla, Kaffi Vest-samsærið og vinir skoðanabræðra Egill Ólafs og Gísli Marteinn sprækir á annan í jólum Tekur yfir borgina á nýársdag Græna gímaldið ljótast Óléttan uppgötvaðist þremur dögum fyrir byrjun skólans Glænýr bóksölulisti: Ólafur Jóhann skákar Arnaldi Eru þetta ljótustu og fallegustu nýbyggingar ársins? „Sat í átta klukkutíma á dag og horfði út um gluggann“ Bandalag listamanna lýsir yfir stuðningi við Dóru „Við erum öll dauð hvort sem er“ Flýta jólasýningunni um klukkutíma vegna lengdar Vangreiðslugjald orð ársins 2025 Fólk eigi ekki að vera hrætt við að skilja ekki „Ef einhver telur að ég hljóti að vera sjúkur, þá verður að hafa það“ Konungur bóksölunnar á í vök að verjast Að gluða tómatsósu yfir sushi-ið Auður segir skilið við Gímaldið Ráðherra tekur sjálfur viðtöl Hvert er mest óþolandi orð íslenskunnar? Sjá meira