Björgvin Brimi í Víking Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. október 2025 16:20 Björgvin Brimi Andrésson í Víkingstreyjunni. víkingur Íslandsmeistarar Víkings hafa samið við hinn sautján ára Björgvin Brima Andrésson. Hann kemur til liðsins frá Gróttu.
Björgvin er yngri bróðir Benónýs Breka, leikmanns Stockport County á Englandi, sem á markametið í efstu deild á Íslandi. Björgvin skrifaði undir fjögurra ára samning við Víking. Kæru Víkingar. Knattspyrnudeild Víkings tilkynnir með mikilli hamingju að Björgvin Brimi Andrésson hefur skrifað undir samning við Íslandsmeistara Víkings út árið 2029.Velkominn í Hamingjuna Björgvin! ❤️🖤Sjá nánar : https://t.co/YbC9cGKbKQ pic.twitter.com/vOwufeo1vp— Víkingur (@vikingurfc) October 8, 2025 Björgvin er uppalinn hjá Gróttu en lék tvo leiki með KR í Bestu deildinni í fyrra. Á nýafstöðnu tímabili skoraði hann átta mörk í tuttugu leikjum fyrir Gróttu í 2. deildinni. Seltirningar enduðu í 2. sæti og endurheimtu sæti sitt í Lengjudeildinni. Víkingur varð Íslandsmeistari í þriðja sinn á síðustu fimm árum og í áttunda sinn alls á sunnudaginn. Víkingar unnu þá FH-inga, 2-0, á heimavelli. „Björgvin Brimi er spennandi leikmaður sem við höfum verið að fylgjast með. Hann er snöggur, teknískur og getur leyst fleiri en eina stöðu. Við hlökkum til að fylgast með honum í Víkingstreyjunni og þróa hann sem leikmann. Hann er með alla burði til að verða frábær leikmaður fyrir Víking,“ sagði Kári Árnason, yfirmaður knattspyrnumála hjá Víkingi, um nýjasta leikmann félagsins.
Besta deild karla Víkingur Reykjavík Grótta Mest lesið „Ég er eiginlega farinn að hata smá Dag Sigurðsson“ Handbolti Hneig niður á sviðinu eftir að hafa náð vigt Sport Sú besta í heimi er ólétt Sport Mismælti sig harkalega í beinni útsendingu Handbolti Danskur landsliðsmaður greindist með krabbamein Körfubolti Sló eitt elsta heimsmetið í frjálsum íþróttum Sport Úlfurinn hans Alfreðs Gísla át skotin hjá Norðmönnum Handbolti „Eitt besta lið í heimi“ Handbolti Sævar um Keflavík: Eins og allir vilji ekki fá brunasár eða marbletti Körfubolti EM í dag: Helgarpabbar og dvalarheimili Handbolti Fleiri fréttir Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Landsliðsbræður Palestínu sameinast í Keflavík Bikarhetjan til KA Þrótti berst mikill liðsstyrkur úr Keflavík Sjá meira