Kaupmáttur jókst í fyrra Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 8. október 2025 09:58 Kaupmáttur jókst í fyrra. Vísir/Vilhelm Kaupmáttur ráðstöfunartekja á mann jókst um 2,3 prósent árið 2024 að teknu tilliti til verðlagsþróunar. Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,9 prósent.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hagstofunni þar sem segir að ráðstöfunartekjur heimilanna hafi aukist um 10,3 prósent árið 2024 borið saman við fyrra ár samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 6,1 milljón króna á árinu og jukust um 8,3 prósent frá fyrra ári. Segir ennfremur í tilkynningunni að lagt sé upp með að endanlegar tölur fyrir árið 2024 verði birtar í mars árið 2026. Þá muni liggja fyrir ítarlegri gögn um rekstur fyrirtækja. Segir Hagstofan að heildartekjur heimilanna hafi aukist um 9,5 prósent árið 2024 samanborið við fyrra ár en þar af jukust launatekjur um 7,4 prósent og eignatekjur um 18,9 prósent. Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 11,8 prósent sem má að mestu rekja til 12,4 prósenta hækkunar lífeyristekna frá fyrra ári en tekjutilfærslur frá almannatryggingum jukust einnig um 7,4 prósent. Gjöld heimilanna jukust um 8,6 prósent á árinu 2024 samanborið við fyrra ár en þar af jukust skattar á laun um 6,7 prósent og vaxtagjöld um 17 prósent. Samkvæmt nýju bráðabirgðamati 2025 jókst kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann um 1,5 prósent á fyrsta ársfjórðungi 2025 og um 1,1 prósent á öðrum ársfjórðungi. Ráðstöfunartekjur heimilanna jukust um 6,5 prósent á öðrum ársfjórðungi 2025 samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðum borið saman við sama tímabil fyrra árs. Ráðstöfunartekjur á mann námu rúmlega 1,6 milljónum króna á ársfjórðungnum og jukust um 5,2 prósent frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar jókst kaupmáttur á mann um 1,1 prósent á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkaði um 4,1 prósent á sama tímabili. Heildartekjur heimilanna jukust um 7,4 prósent á öðrum ársfjórðungi 2025. Sá liður sem vegur hvað þyngst í aukningu heildartekna er launatekjur en þær jukust um 7,5 prósent frá sama ársfjórðungi á síðasta ári. Lífeyristekjur og félagslegar tilfærslur jukust um 9,5 prósent á öðrum ársfjórðungi 2025 samanborið við sama tímabil fyrra árs og námu 15,3 prósentum af heildartekjum heimilanna á ársfjórðungnum. Gjöld heimilanna jukust um 8,4 prósent á öðrum ársfjórðungi en þar af jukust skattar á laun um 8,7 prósent og vaxtagjöld um 3 prósent. Þá jukust tryggingagjöld atvinnurekenda og launafólks heimilageirans um 5,9 prósent samanborið við sama tímabil fyrra árs.
Efnahagsmál Verðlag Fjármál heimilisins Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira