Bjargaði lífi mótherja í miðjum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. október 2025 06:31 Nikola Katic var mjög fljótur að hugsa þegar Joel Grodowski lá meðvitundarlaus í grasinu. Getty/Friso Gentsch Bosníumaðurinn Nikola Katic var fljótur að hugsa í þýska fótboltanum um helgina og mótherji hans á nú honum mögulega líf sitt að þakka.
Joel Grodowski, framherji Arminia Bielefeld, fékk mikið högg frá Schalke-markverðinum Loris Karius í leik liðanna í þýsku B-deildinni. Karius er auðvitað þekktastur fyrir tíma sinn hjá Liverpool og mörkin sem hann fékk á sig í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Katic er miðvörður og var liðsfélagi Guðlaugs Victors Pálssonar hjá Plymouth á síðasta tímabili. Hann færði sig yfir til Þýskalands í sumar. Schalke var 2-1 yfir þegar Karius keyrði niður Grodowski. Grodowski missti meðvitund við höggið og gleypti tunguna sína. Katic var fljótur að hugsa, tók tunguna úr kokinu, opnaði öndunarveginn og setti Grodowski í læsta hliðarlegu. Grodowski fékk síðan frekari umönnun hjá læknaliðinu sem kom aðvífandi. Grodowski náði fljótt meðvitund en fór að sjálfsögðu af velli. Hann faðmaði Katic og þakkaði honum lífsbjörgina áður en hann fór af velli. Katic fékk þakkir úr öllum áttum og mikið hrós fyrir að sýna yfirvegun og hugrekki við sláandi aðstæður. The footage is so scary, but amazing from Nikola Katic... 👏 pic.twitter.com/DX6geaAXxE— SPORTbible (@sportbible) October 6, 2025
Þýski boltinn Mest lesið Viðurkenna að VAR hafi bilað Fótbolti Arnar Daði rekinn frá Stjörnunni en áfram þjálfari kvennaliðsins Handbolti Jólagjöf í Keflavík: Remy Martin snýr aftur Körfubolti Koepka fyrsta stjarnan sem riftir samningi við LIV Golf Úr Bestu heim í Hauka Íslenski boltinn Þessi tíu eru tilnefnd sem Íþróttamaður ársins 2025: 23 ára aldursmunur Sport Stefndi á ÓL en fannst látinn á hótelherbergi Sport Ótrúlegur sigur á HM: „Ég er mjög tregur svo pressan nær ekki til mín“ Sport Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Íslenski boltinn Ekkert spilað í vetur en gæti mætt Íslandi í fyrsta leik á EM Handbolti Fleiri fréttir Mahrez batt enda á bið Alsíringa Heyrði hvorki frá Blikum né Víkingum Ruglaðar lokamínútur í Afríkukeppninni Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Viðurkenna að VAR hafi bilað Úr Bestu heim í Hauka „Þetta er stærsti klúbbur Íslands“ Kaupmannahafnarbúi afgreiddi Úganda Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City Iwobi og Lookman áberandi í sigri Nígeríu „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Amanda hætt hjá Twente Jackson hóf Afríkumótið með látum Fullkrug leysir Origi af í Mílanó Versta tímabil Vinícius í mörg ár og samningaviðræður sigla í strand Kongóliðar byrja á sigri Glódís framlengir samninginn við Bayern Chelsea setur sig í samband við Semenyo Sagan ekki sönn: „Veit ekki hvaðan þetta á að hafa komið“ Hætt við að spila í Ástralíu en óvíst hvar leikurinn verður Neymar kominn á lappir og lofar að skora í úrslitaleik HM Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Erfitt að vera í burtu þegar mamma greindist „Svona lítur frábær ákvörðun út“ Einn leikmaður með samning og völlurinn ólöglegur Salah færði Egyptum draumabyrjun Sjá meira