Hreinsun þakrenna fyrirbyggir skemmdir Skrúbb 1. október 2025 09:16 Ágúst Ármann, framkvæmdastjóri fyrirtækisins Skrúbb segir það geta orðið kostnaðarsamt að trassa hreinsun á þakrennum. Haustið er tími fjúkandi laufa og rigninga og þá fer álagið að aukast á þakrennum landsmanna. Ágúst Ármann, framkvæmdastjóri Skrúbb, segir mikilvægt að sinna reglulegu viðhaldi svo forðast megi kostnaðarsamar skemmdir. Fyrirtækið hefur á undanförnum árum sérhæft sig í hreinsun, viðgerðum og skiptum á rennum fyrir einstaklinga og húsfélög.
Reglulegt viðhald sparar kostnað „Við mælum með því að þrífa rennurnar að minnsta kosti einu sinni á ári. Ef mikill trjágróður er í kring getur þurft að gera þetta tvisvar,“ segir Ágúst. Hann segir stíflur geta valdið leka, rakaskemmdum og jafnvel myglu innandyra. „Oft hringir fólk í okkur þegar það er orðið of seint, þegar múrinn er farinn að gefa sig og þakkanturinn skemmdur svo þarf jafnvel að múra upp aftur. Með reglulegri hreinsun má forðast að slíkt komi upp.“ Alhliða þjónusta Ágúst mælir ekki með því að húseigendur príli sjálfir upp á þak til að hreinsa rennurnar, hann mætir frekar á staðinn með 28 metra körfubíl. Fyrirtækið Skrúbb hefur starfað í þrjú ár og tók í fyrra að sér viðgerðir og heildarskipti á rennum. „Við sáum að þörf var á þessu, svo við réðum inn smið og erum nú farin að sjá um alla þjónustu tengda þakrennum og niðurföllum, hreinsun, viðgerðir og endurnýjun,“ útskýrir Ágúst. Skrúbb hefur yfir að ráða körfubíl sem nær allt að 28 metra hæð og nýtist hann vel fyrir fjölbýlishús og minni húsfélög. „Það er ekki sniðugt að fólk sé að brasa í þessu sjálft þegar rennurnar eru hátt uppi,“ segir Ágúst og bætir við að Skrúbb bregðist fljótt við þegar ástandið krefst tafarlausra aðgerða. Ef flæðir eins og úr sturtu er líklega stíflað Ágúst ráðleggur húsfélögum og eigendum að fylgjast vel með þakrennunum hjá sér eftir mikla úrkomu og hvassviðri þegar lauf falla af trjám og labba þá einn hring kringum húsið. „Ef vatn flæðir yfir brúnina á rennunum eða rennur út eins og úr sturtu, þá er yfirleitt stífla til staðar. Þá þarf að skoða hvort vandinn liggi í laufblöðum í niðurfalli eða hvort ryð hafi nagað sig í gegn. Við erum fljótir að bregðast við.“ Skrúbb teku rað sér viðgerðir á þakrennum og skipti þegar þess þarf. Teppahreinsun fyrir hátíðirnar Auk rennuhreinsunar tekur Skrúbb að sér teppahreinsun á stigagöngum og gluggaþvott. „Teppahreinsunin er sérstaklega vinsæl fyrir jól og eins í mars, apríl til að hreinsa upp eftir snjó og slabb vetrarins. Þá mætir teymi á staðinn sérhæfðan búnað. Við sprautum hreinsidufti yfir teppin og burstum það ofan í trefjarnar, svo er teppið djúphreinsað og sérstakt efni notað á bletti,“ segir Ágúst. „Við erum aðallega að teppahreinsa stigaganga en bjóðum einnig upp á djúphreinsun á sófum og húsgögnum, sem margir nýta sér fyrir jólin.“
Hús og heimili Mest lesið Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Húsnæði Kjötborgar til sölu Viðskipti innlent Enn meiri breytingar: Yfirmenn klónaðir með gervigreind Atvinnulíf Óvissa með nöfnin og reynt að róa uggandi starfsmenn Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Búast við hærri vöxtum á óverðtryggðum lánum Viðskipti innlent Sigrún ráðin aðalbókari Viðskipti innlent Fleiri fréttir Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Afkomuöryggi allan hringinn með FLM Nú er tíminn fyrir þak og klæðningar: „Við horfum á veðrið, ekki dagatalið“ Traustur samstarfsaðili í byggingariðnaði Einföld hugmynd sem er nú orðin grunnstoð í rekstri þúsunda fyrirtækja Nýtt afl virkjað í Elliðaárstöð Hvaða iðnaðarmaður stóð sig best? „Bílastæðið er fyrsta upplifun viðskiptavinarins“ Kosning: Hver verður Iðnaðarmaður ársins 2026? Cayenne Electric kikkstartar nýjum rafbílakafla Porsche Göngugreining getur leyst stoðkerfisverki Armar byggir á traustum grunni og horfir til framtíðar Orkan fyrst eldsneytisfyrirtækja á Íslandi með umhverfisvottun fyrir allar stöðvar Dagur verkfræðinnar: Vilja vekja áhuga ungs fólks á tækni- og raungreinum BYKO og Tækniskólinn sameina krafta sína á Verk og vit Auðvelda Íslendingum að skilja ekkert eftir Greiðsluáskorun Ein heild – sveigjanlegar lausnir í byggingariðnaði Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Orkuveitan jafnar stöðu foreldra á vinnumarkaði Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl Kulnun, kostnaður og gervigreind: Hvað gera stjórnendur nú? Umferðaröryggi í brennidepli á Forvarnaráðstefnu VÍS Í hvað eru peningarnir þínir að fara? Sjá meira
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent
Orion Tannlæknastofa kynnir starfsemi sína í Budapest og Reykjavík - Hringferð í kringum landið í Apríl
Endurráða alla 300 starfsmennina og setja þrjá milljarða í endurbætur ásamt Reitum Viðskipti innlent