Tvenna Jesus dugði ekki er Antony sótti stigið Ágúst Orri Arnarson skrifar 24. september 2025 21:03 Lærisveinar Postecoglou réðu illa við Antony. Joaquin Corchero/Europa Press via Getty Images Igor Jesus skoraði bæði mörk Nottingham Forest í 2-2 jafntefli á útivelli gegn Real Betis í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar.
Þetta var fyrsti Evrópuleikur Forest síðan á síðustu öld og Jesus steig upp eftir að liðið lenti undir. Cédric Bakambu kom heimamönnum Real Betis yfir eftir stundarfjórðungsleik og stoðsendingu frá Antony. Igor Jesus jafnaði aðeins þremur mínútum síðar og skoraði síðan aftur á 23. mínútu. Morgan Gibbs-White og Douglaz Luiz lögðu upp fyrir Brasilíumanninn sem hefur nú skorað fjögur mörk á tímabilinu. Forest hélt forystunni heillengi en tókst ekki að taka stigin þrjú. Antony skoraði jöfnunarmark fyrir Real Betis þegar aðeins fimm mínútur voru eftir af venjulegum leiktíma og þar við sat. Önnur úrslit úr Evrópudeildinni Sex aðrir leikir fóru fram á sama tíma í kvöld og tveir leikir fóru fram fyrr í dag. Malmö tapaði 1-2 á heimavelli gegn Ludogorets. Daníel Tristan Guðjohnsen var í byrjunarliði heimamanna og spilaði allan leikinn en komst ekki á blað. Nice vann 2-1 gegn Roma og miðvörðurinn Dante varð elsti leikmaður í sögu Evrópudeildarinnar, 41 árs gamall. Freiburg vann 2-1 gegn Basel í „Flugvallaslagnum“ svokallaða, milli tveggja liða frá borgum í sitt hvoru landinu sem deila samt flugvelli. Braga vann 1-0 gegn Feyenoord. Dinamo Zagreb vann 3-1 gegn Fenerbahce. Rauða Stjarnan gerði 1-1 jafntefli við Celtic.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Hákon Arnar meiddist Fótbolti Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Fleiri fréttir „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins Sjá meira